SPRON fór yfir leyfileg mörk:Sparisjóðirnir tæmdir að innan,eins og Bankarnir,við borgum þetta allt!!!!!


Í rannsóknarskýrslunni er sagt frá því að...
Frétt af mbl.is SPRON fór yfir leyfileg mörk Viðskipti | mbl | 10.4.2014 | 19:40 Í rannsóknarskýrslunni er sagt frá því að... Í árslok 2008 nam heildarskuldbinding Brautarholts 20 ehf. og tengdra aðila við Sparisjóð Reykjavíkur og nágrennis tæpum 5,4 milljörðum króna og var áhættuskuldbindingin 29,4% af eiginfjárgrunni.
 
Þrátt fyrir það má áhætta vegna tengdra viðskiptamanna ekki fara yfir 25% samkvæmt lögum. Þrátt fyrir það má áhætta vegna tengdra viðskiptamanna ekki fara yfir 25% af eiginfjárgrunni samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki.
 
Þetta kemur fram í rannsóknarskýrslu um sparisjóðina sem kynnt var í dag. Fjármálaeftirlitið fékk ekki tilkynningu Fari áhættuskuldbinding yfir 25% mörkin skal það tilkynnt Fjármálaeftirlitinu án tafar, en í rannsóknarskýrslunni segir að Fjármálaeftirlitið hafi ekki fengið neina tilkynningu frá sparisjóðnum um skuldbindinguna.
 
Brautarholt 20 var stærsta áhættuskuldbinding sparisjóðsins á árunum 2006-2008, en félagið var í eigu stjórnarformanns félagsins og framkvæmdastjóra þess.
 
Þá áttu þeir báðir hluti í félögunum Skjólvangi ehf. og Streng Byggingum ehf. en framkvæmdastjórinn átti til viðbótar hluti í Parketi ehf., Málmsteypu Ámunda Sigurðs ehf., Tjarnarvöllum 5 ehf. og Árbakka ehf. Félögin Arnarsmári ehf. og Fasteignasölusérleyfi ehf. (Remax) voru í eigu stjórnarformannsins og viðskiptafélaga hans.
 
Varð gjaldþrota árið 2011 Lán hópsins voru flest í erlendri mynt og eftir hrun bankakerfisins hækkuðu þau mjög mikið.
 
Veð að baki lánunum, sem voru að miklu leyti í fasteignum, lóðum og hlutabréfum, höfðu lækkað í verði og hlutabréfin mörg hver orðin einskis virði.
 
Félagið var úrskurðað gjaldþrota í nóvember 2011, en Drómi hf (slitastjórn Sparisjóðsins og Frjálsa fjárfestingabankans) leysti þá til sín nokkrar eignir félagsins og lýsti kröfu í búið upp á 3,3 milljarða.////////////////////////Þetta er að verða ein skírsla á dag frá hruninu,og afleiðingum þess nú skírsla uppá 1800 blaðsíður í 7 bindum og kostaður 600 milljónir,og hverjum að kenna,það er fljót sagt þeirra sem þessu stjórnuðu ,bera þeir enga ábyrgð,þetta er eins og með "litlu gulu Hænuna"Allir vildu borða en engin gerði hlutina,svona er þetta í stuttu máli,!!!en ábyrðin er hún ekki hjá stjórunum og stjórnunum,og mikið var allt í vitleysu þarna eiginlega með endemum,menn kepptust við að greiða sér arð úr stofnsjóðum jafnvel þó þeir hefðu aldrei borgað neitt,syndir feðrana segir einkverstaðar,koma niður á börnunum,og svo verður áfram,það var gaman að hlusta í dag í fréttatímum,hvernig hægt er að fara með okkur öll,sem þurfum að borga þennan þjófnað,segi það hiklaust að þetta er það!!!!/Halli gamli

mbl.is SPRON fór yfir leyfileg mörk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 1045798

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband