Sjóvá hyggst taka upp kaupaukakerfi:Finnst ykkur þetta í lagi að verðlauna menn sem jafnvel arðræna fólk!!!!

Frétt 
Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvár.
Frétt af mbl.is Sjóvá hyggst taka upp kaupaukakerfi Viðskipti | mbl | 10.4.2014 | 21:12 Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvár.
 
Tryggingafélagið Sjóvá hyggst taka upp árangurstengt kaupaukakerfi fyrir starfsmenn sína en tillaga þess efnis verður lögð fyrir aðalfund félagsins 29. apríl næstkomandi.Í tilkynningu félagsins til Kauphallarinnar segir að stefnan miði að því að félagið sé ávallt samkeppnishæft og geti ráðið til sín framúrskarandi starfsfólk.
 
Þar segir jafnframt að kerfið skuli vera í samræmi við reglur Fjármálaeftirlitsins um slík kerfi hjá fjármálafyrirtækjum.
 
Í frétt á vef Viðskiptablaðsins segir að á ársgrundvelli megi kaupauki starfsmanns ekki nema hærri fjárhæð en 25% af árslaunum viðkomandi án kaupauka.
 
Þá skuli enn fremur fresta greiðslu hluta af kaupauka um að lágmarki þrjú ár, þannig að unnt sé að taka tillit til sveiflna í viðskiptalífinu og hagkerfinu sem geta haft áhrif á árangur.
 
Fyrsti viðskiptadagur með bréf í Sjóva í Kauphöllinni verður á morgun, föstudag////////////////Alt látum við yfir okkur ganga,ríkið ný búið að bjarga Sjóvá um 30 milljarða og svo selt,og nú á að fara að setja þetta í kauphöll tryggingafélag sem geplar með tryggingar okkar og svo að veita þeim kaupauka sem svindlað eða svo getum við sagt ef tryggingarfélagið þarf ekki að borga,ég veit að akkorðsvinna iðnaðarmanna er mæld út og borguð uppmæling en er þetta nokkur skylt því spyr bara,við erum í mörgum tilfellum neydd til að tryggja,og lýsið því bara fyrir mér,hvernig er að því farið að borga þarna fyrir afköst,ég get ekki séð að þetta sé heilbrigt,als ekki að koma þessu á,allt annað er að bjóða í verk og verða að standa við það,en svona hlutir eru bara hvati til að svindla///Halli gamli  
.

mbl.is Sjóvá hyggst taka upp kaupaukakerfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 9
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 57
  • Frá upphafi: 1045707

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband