Bannað að rukka ferðamenn við Geysi:Þetta er barasta rugl,hvað verður um hugtakið eiggn eftir þetta,eða á þetta bara við um ríkið okkar???

B
Frá héraðsdómi Suðurlands í morgun.
Bannað að rukka ferðamenn við Geysi Innlent | mbl.is | 14.4.2014 | 10:14 Frá héraðsdómi Suðurlands í morgun.
 
Héraðsdómur Suðurlands komst að þeirri niðurstöðu í morgun að sýslumanninum á Selfossi beri að framfylgja lögbannskröfu á gjaldtöku landeigenda við Geysissvæðið.
 
Lögmaður ríkisins vonast til að bannið taki gildi sem fyrst.Gjaldtaka hófst á Geysissvæðinu laugardaginn 15. mars, en tveimur dögum áður hafnaði sýslumaðurinn á Selfossi lögbannskröfu ríkisins vegna innheimtunnar.
 
Ríkið skaut þá málinu til Héraðsdóms Suðurlands. Rök ríkisins fyrir lögbanni eru þau að gjaldtakan sé ekki heimil án samþykkis allra landeigenda.
 
Eignarhlutur á Geysissvæðinu skiptist í tvennt, annars vegar 23 þúsund fermetra séreignarland ríkisins í hjarta hverasvæðisins og hinsvegar landið umhverfis hverina sem er í sameign ríkisins og félags landeigenda.
 
Ívar Pálsson, lögmaður ríkisins, sagðist í samtali við mbl.is vera mjög ánægður með þessa niðurstöðu. Krafan verði nú send til sýslumanns sem tekur hana til afgreiðslu og framfylgir henni. Óskað verði eftir því að bannið taki gildi sem fyrst. Dómurinn í heild„Ég lýsi vonbrigðum mínum með þetta, finnst lítið gert úr eignarétti einstaklinga miðað við eignarétt ríkisins,“ sagði Garðar Eiríksson, talsmaður landeigendafélags Geysis.
 
Héraðsdómur Suðurlands komst að þeirri niðurstöðu í morgun að sýslumanninum á Selfossi beri að framfylgja lögbannskröfu fjármálaráðuneytisins á gjaldtöku landeigenda við Geysissvæðið. Gjaldtöku hætt þegar í stað Garðar segir að gjaldtöku hafi þegar verið hætt við Geysi, þó sýslumaður eigi enn eftir að framfylgja banninu.
 
Hann segir að farið verði yfir málið í dag og næstu daga og tekin verði ákvörðun hvort úrskurðurinn verður kærður. „Við erum ekki hætt. Við eigum þetta land sem er á leiðinni til andskotans vegna álags. Við ætlum ekki að láta það eyðileggjast þannig að ferðaþjónustuaðilar geti haft af því afnot án þess að greiða fyrir það,“ segir Garðar í samtali við mbl.is.
 
Gjaldtakan hófst 15. mars sl. og kostaði 600 krónur að skoða svæðið. Í yfirlýsingu frá landeigenda félaginu segir að niðurstaða Héraðsdóms Suðurlands sé félaginu mikil vonbrigði. „Dómur vekur upp spurningar um eignarrétt og getur tafið verulega fyrir nauðsynlegri verndun og uppbyggingu á Geysissvæðinu sem er þegar á lista Umhverfisstofnunar um þau verndarsvæði sem eru í mikilli hættu á að tapa verðgildi sínu.
 
Landeigendafélagið mun nú fara ítarlega yfir röksemdir dómsins og ákveða í framhaldi af því hver næstu skref félagsins í málinu verða.“ Brýtur gegn lögvörðum rétti ríkisins Í niðurstöðu héraðsdóms frá í morgun segir að samkvæmt almennum reglum eignarréttar gildir sú meginregla um sérstaka sameign að samþykki allra sameigenda þurfi til
 
„óvenjulegra ráðstafana og ráðstafana sem séu meiriháttar þótt venjulegar geti talist.“ Að mati dómsins hefur ríkissjóður sannað eða gert það sennilegt að sú athöfn landeigenda að selja aðgang að hverasvæðinu brjóti eða muni brjóta gegn lögvörðum rétti ríkisins þar sem athöfnin muni skerða heimildir ríkisins til nota og ráðstöfunar á sameignarlandi þess, umferðarrétti um sameignarlandið og rétti til þátttöku í ákvarðanatöku varðandi uppbyggingu á svæðinu.
 
Þá þykir sú ákvörðun landeigenda að selja aðgang að hverasvæðinu fela í sér grundvallarbreytingu á nýtingu og tilgangi sameignarsvæðisins sem fara þarf um til að skoða helstu hveri svæðisins, sem óumdeilanlega eru þau náttúrufyrirbæri sem draga að gesti, en umræddir hverir eru á séreignarlandi ríkisins.
 
Þá er einnig fallist er á það með ríkissjóði að sennilegt sé að innheimta gjaldsins muni skaða framtíðarafnot og hagsmuni ríkisins af svæðinu.
 
Í úrskurðarorðum Héraðsdóms Suðurlands segir: „Lagt er fyrir sýslumanninn á Selfossi að leggja lögbann við því að forsvarsmaður Landeigendafélags Geysis ehf. innheimti gjald af ferðamönnum inn á Geysissvæðið, þ.e. inn á hverasvæðið við Geysi í Haukadal í Bláskógabyggð. Varnaraðili greiði sóknaraðila 500.000 krónur í málskostnað.“/////////////////Þetta  er mjög umdeildur dómur svo ekki sé meira  sagt!!!Yfirgangur Ríkisins er ekki nýr af nálinni,og kemur vel í vondan þegar sjálfstæðismenn eiga í hlut til hvers er þá eignin  ef eigandinn er réttlaus með hana,loksins þegar taka á af skarið og gera hlutina rétt til að gera þetta viðeigandi vel úr garði er það dæmt ólöglegt,er betra að ríkið sjálft setji gjaldið á og geri svo ekkert  við peningin nema í hítina,sem engin veit hvert fer,eins og með vegaskattinn af bensíninu,sem fer svo í reyðahjólastíga,eða eitthvað???þetta er skömm fyrir flokkinn minn og ekkert annað!!!!hver var  að tala um Rússland!!!//Halli gamli

mbl.is Bannað að rukka ferðamenn við Geysi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ríkið á landið innan girðingar og hverina á því landi. Þar að auki eru lög sem banna svona gjaldtöku, jafnvel þó Landeigendafélagið Geysir ehf. ætti eitthvað land. Landeigendafélagið Geysir ehf. er ekki landeigendafélag Geysis.

Ufsi (IP-tala skráð) 14.4.2014 kl. 17:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 7
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 55
  • Frá upphafi: 1045705

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband