13.8.2014 | 18:25
Ólöf Nordal með illkynja æxli/Vonandi læknast það við óskum henni bata, og biðjum fyrir henni blessaðri!!
Ólöf Nordal með illkynja æxli Innlent | mbl | 13.8.2014 | 17:29 Ólöf Nordal gengst undir lyfjameðferð fram til jóla og... Þetta bar alveg svakalega brátt að.
Ég fór á slysavarðsstofuna á föstudagskvöld og það var búið að skera mig upp á mánudagsmorgni, segir Ólöf Nordal, sem greindist nýlega með illkynja æxli og segir lífið hafa gjörbreyst á augnabliki.
Hún verður á Íslandi í vetur til að berjast við meinið.Ólöf tók sér hlé frá stjórnmálastarfi í fyrra og flutti til Genfar ásamt eiginmanni sínum Tómasi Má Sigurðssyni.
Hann fékk svo fyrir stuttu nýtt starf í New York og stóð til að þau hjónin flyttu þangað á næstu vikum, en þá tóku æðri máttarvöld í taumana, eins og Ólöf orðar það sjálf á vefsíðu sinni þar sem hún greindi frá veikindunum í dag.
Tilgangslaust að vera með þykjustu hetjugang Ég ákvað að fara til læknis við komuna heim af því að ég var orðin svo mikil um mig miðja frekar skyndilega. Ólöf Nordal er fyrrverandi þingmaður og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, og núverandi formaður bankaráðs Seðlabankans.
Ólöf Nordal er fyrrverandi þingmaður og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, og núverandi formaður bankaráðs Seðlabankans. mbl.is/âKristinn Ingvarsson Á örskotsstundu skiptu fyrri plön engu máli, hversdagslegu verkefnin víkja núna fyrir þeirri stærstu áskorun sem ég hef staðið frammi fyrir.
Óboðinn gestur hafði nefnilega sest innra með mér. Gesturinn, illkynja æxli, var fjarlægður með skurðaðgerð og nokkurra mánaða lyfjameðferð er nú hafin.
Ólöf segir í samtali við mbl.is hafa verið algjörlega grunlaus um æxlið sem var að vaxa innra með henni og er þakklát fyrir að hafa þrátt fyrir það leitað til læknis
. Ég hef haft það þannig í lífinu að maður eigi alltaf að harka af sér og ekki kvarta og kveina yfir engu, en ég lærði af þessu að ef það er eitthvað sem manni finnst skrýtið, þá á maður að fara til læknis og ekki vera með neinn þykjustu hetjugang. Ólöf Nordal.
Ólöf Nordal. mbl.is/Áârni Sæberg Það er bara asnalegt. Síðan eiga allir að fara í reglulega skoðun, segir Ólöf.
Ekki bara vont Fyrir þá sem ekki hafa reynt á eigin skinni er erfitt að ímynda sér hvernig það er að fá slík ótíðindi í andlitið svo lífið tekur algjöra U-beygju.
Það er rosalegt. Það er eiginlega ekki hægt að lýsa því, segir Ólöf. Maður telur sig vita það en trúir því í raun aldrei að það gerist neitt fyrir mann sjálfan, en þegar það gerist og þú færð svona fréttir, þá breytist allt. Ólöf segir að þrátt fyrir allt sjái hún líka ýmislegt jákvætt við þetta
. Þetta er ekki bara vont, þetta er líka gott, því maður þarf að kunna að meta það sem maður hefur. Kannski hljómar klisjukennt að segja þetta, en það er bara rétt.
Vegna veikindanna ákváðu þau hjóni að vera heima í allan vetur þar sem þau ætli að takast á við þetta, öll saman, en Ólöf á fjögur börn.
Það er ofboðslega gott að vera heima þegar svona gerist, bæði hjá fjölskyldu og börnunum mínum númer eitt, tvö og þrjú, en líka hjá vinum.
Það er mikilvægt að vera ekki einn og maður finnur það alltaf betur og betur hvað það skiptir miklu máli að eiga góða að. Þetta komu okkur ofboðslega á óvart, en við bara vinnum úr því. Það er enginn bilbugur á okkur og við höfum fulla trú á því að þetta muni ganga yfir.
Það tekur bara í, á meðan það gerir það. Eitt stærsta verkefni ævinnar Ólöf segist ekki ætla að velta sér upp úr veikindunum, en hún ætli hins vegar að sigrast á þeim.
Ég finn um leið hvað jákvæðni og stilltur hugur skiptir miklu máli þegar áföll ríða yfir.
Að reyna að ná stjórn á hugsunum sínum og laða fram það jákvæða í lífinu hjá mér sjálfri og öllum þeim sem eru í kringum mig, skrifar hún á vefsíðu sína í dag.
Aðspurð segist hún gera ráð fyrir að lyfjameðferðin standi fram að jólum, sex sinnum á þriggja vikna fresti. Svo eftir það held ég að ég þurfi bara að hvíla mig.
Maður þarf að nota allt sitt andlega þrek núna til að vinna með líkamanum á móti, svo þegar það er búið þarf maður að byggja sig upp. Ólöf segist hafa fulla ástæðu til bjartsýni að lokinni lyfjameðferðinni.
Fram að þessu hafi allt gengið eftir áætlun, meira að segja hárið sem fjúki nú af henni en á morgun ætlar hún að láta raka það alfarið af og segir að hressandi verði að láta íslenska síðsumarið leika um kollinn.
Það er svakalegt að vera komin með hárið á sér í hendurnar, svo ég ætla bara að láta taka það allt saman.
Ég er mjög eyrnastór og er eiginlega svolítið forvitin að sjá hvort fólk í kringum mig verður hrætt við mig þegar hárið er farið.
Frá og með morgundeginum verður Frú Eyrnastór mætt á staðinn, segir Ólöf og hlær.
Hún tekst því á við erfiða áskorun af einarðri baráttugleði, en segir að næsta árið muni glíman við veikind
in taka alla hennar krafta. Þau verða ekki mikið stærri verkefnin í lífinu en þetta.///////////Þetta er alveg rétt hjá henni blessaðri að vera bara opin í baráttunni,þetta lýsir mangerðinni hennar vel,og við öll sameinumst um að styðja hana í bak og fyrir,og biðjum fyrir henni blessaðri,ég veit hvernig þetta er að fá þetta,Guð er með okkur sem á hann trúum,og óskum við henni alls góðs,og hennar fólki//Halli gamli
Ólöf Nordal með illkynja æxli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:26 | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.