20.8.2014 | 11:17
Keypt gjaldeyri fyrir 61 milljarð//Er þetta virkilega rétta leiðin????
Keypti gjaldeyri fyrir 61 milljarð Viðskipti | mbl | 20.8.2014 | 10:37 Már Guðmundsson, bankastjóri Seðlabanka Íslands.
Már Guðmundsson, bankastjóri Seðlabanka Íslands, segir það vera alveg ljóst að án umfangsmikilla gjaldeyriskaupa bankans hefði gengi íslensku krónunnar hækkað verulega.
Hrein gjaldeyriskaup bankans á millibankamarkaði hafa numið 61 milljarði króna það sem af er ári.Már segir að stefnt sé að því að regluleg gjaldeyriskaup haldi áfram í núverandi umfangi svo lengi sem aðstæður breytist ekki umtalsvert.
Eftir sem áður muni Seðlabankinn beita óreglulegum viðskiptum í því skyni að draga úr sveiflum í gengi krónunnar. Hann kynnti ákvörðun peningastefnunefndar bankans um að halda stýrivöxtum sínum óbreyttum á kynningarfundi í morgun.
Seðalabanki íslands. Seðalabanki íslands. mbl.is/​Ernir Vextirnir hafa nú verið óbreyttir Í 6% allt frá því í nóvember árið 2012.
Eins og alkunna er hefur Seðlabankinn verið afar umsvifamikill á gjaldeyrismarkaði á undanförnum mánuðum. Þannig hefur bankinn keypt gjaldeyri verulega umfram það sem hann hefur selt bæði í reglulegum kaupum og óreglulegum viðskiptum.
Már benti á að þessi gjaldeyrisviðskipti hefðu stuðlað að auknum stöðugleika krónunnar. Það væri kannski ekki öllum ljóst hversu mikinn gjaldeyri bankinn hefur verið að kaupa á þessu ári. Nema um 3% af landsframleiðslu
Við höfum nú þegar keypt fyrir rúman 61 milljarð króna, sem er um 3% af landsframleiðslu, á árinu Til samanburðar má áætla að vaxtagreiðslur í ár á erlendum skuldum ríkissjóðs verði tuttugu milljarðar króna, sagði Már og bætti við að árinu væri auðvitað ekki enn lokið
. Nú er það þannig að ef við höldum áfram að kaupa sex milljarða evra á viku eins og stefnt er að, verða það 312 milljónir evra á ári, eða 48 milljarðar króna, og mun það þá duga vel fyrir þessum vaxtagreiðslum.
Og jafnframt verður einhver afangur upp í það að auka innlenda fjármögnun gjaldeyrisforðans, sagði Már á fundinum.
Fram kemur í Peningamálum, sem gefin voru út í dag, að gengi krónunnar hafa haldist tiltölulega stöðugt frá því Peningamálum í maí.
Það hafi lækkað lítillega gagnvart viðskiptaveginni gengisvísitölu og evru en um 2-2,5% gagnvart Bandaríkjadal og bresku pundi.
Þá hafi gjaldeyrisinnstreymi vegna komu erlendra ferðamanna til landsins og minni afborganir erlendra lána innlendra fyrirtækja og sveitarfélaga hafa stutt við gengið.
Á móti hafi þróun vöruskiptajafnaðar verið óhagstæð og Seðlabankinn keypt talsvert af gjaldeyri á markaði, eins og áður var nefnt.
Gengi krónunnar miðað við vísitölu meðalgengis var rúmlega 206 stig á öðrum fjórðungi ársins sem er lítillega hærra en gert var ráð fyrir í maíspá bankans.
Sem fyrr byggist grunnspá bankans á þeirri forsendu að gengið haldist óbreytt út spátímann miðað við stöðu vísitölunnar þegar spágerð lýkur.
Gangi það eftir verður vísitalan rúmlega 206 stig út spátímann sem er svipað og í maíspá bankans./////////////////////////"Mikið skal til mikils vinna" segir máltækið,og það er kannski gott að svindla svona á hlutunum,ég segi það þótt kannski þetta sé eina leiðin til að halda vísitölunni,Leikmenn sem við erum sem eru ekki skólagengnir og með neinar Gráður,í náminu erum alltaf að spökulera,hvað okkur gengur til að hafa krónuna svona lágt skráða,væri ekki betra,að hafa annan gjaldmiðil það er málið,T.D. Dollar hann er hægt að kaupa og setja upp nýtt kerfi algjörlega!!!það er sem þarf og við getum ef vilji er fyrir hendi og verðtrygginguna af,sem auðvitað verður gert,og ekkert annað þá þurfum við ekki þennan Seðlabanka bara skúffu í Landsbankanum,þetta er það eina sem gyldir annað er ekki í stöðunni//Halli gamli
Keypt gjaldeyri fyrir 61 milljarð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (3.5.): 1
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 48
- Frá upphafi: 1045682
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 45
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Myndaalbúm
Af mbl.is
Erlent
- Tyrkir stöðva viðskipti við Ísrael
- 20 fórust í rútuslysi í Pakistan
- Mótmælt við stærsta háskóla Mexíkó
- Átta særðir eftir loftárás Ísraela
- Hákarl á hjólreiðastíg: Hvaðan í ósköpunum kom hann
- Leigubílstjórar í London kæra Uber
- Ein stærsta svikamylla Evrópu afhjúpuð
- Rýfur þögnina um átökin á háskólasvæðunum
- TikTok og Universal sættust
- Rússar sakaðir um að beita efnavopnum
Viðskipti
- Allra augu á opinbera markaðinum
- Íslandsbanki skilar hagnaði
- Stjórnvöld hafa tvo mánuði til að bregðast við
- Landsbankinn skilar 7,2 milljarða hagnaði
- Hefja sölu á íbúðum á Orkureitnum
- Íslenskt nýsköpunarfyrirtæki vinnur að kolefnishlutlausu Noregi
- Markaðurinn brást illa við óbreyttum stýrivöxtum
- Ný hótelkeðja er í burðarliðnum á Íslandi
- Gull tapi síður verðgildi
- Fjárfestu fyrir 3,5 milljarða í samgönguinnviðum
Athugasemdir
það er allra bót að gjaldeyrisforðinn sé ekki rekinn með lánum að meirihluta eins og nú er eftir hrunið. það er vel að geta notað afgang af viðskiptum okkar til þess að borga niður skuldir og einnig gjaldeyrisforðann því þegar hann (gjaldeyrisforðinn) verður orðinn skuldlaus þá eykst traust á landið til muna, sem það er þegar að gera vegna þess að við erum að borga niður skuldir. það sjá aðrar þjóðir og hafa mörg hver lofað okkur fyrir.
Þórarinn (IP-tala skráð) 20.8.2014 kl. 11:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.