Hvað ef Óli björn væri Alþingismaður núna,yrði vonandi hreyft við hlutunum!!!

550663
 Ég varð að stela þessu frá Halldóri flokksbróðir mínum!!!!!!!Hvað ef Óli Björn væri alvöru? þingmaður en ekki vara?
 
Þyldi þjóðfélagið enn beinskeyttari skrif um vandamálin? Óli Björn er eiginlega atkvæðamesti þingmaðurinn sem skrifar um þjóðfélagsmeinið sem er allt stór ríkisböllur eins og foringinn okkar í Sundlaugunm í Laugardal hann Björgvin af Vaðnesi orðaði það.
 
Óli Björn skrifar í dag:(bloggari feitletrar) "Rekstur ríkisins og kostnaður vegna skulda nam alls 2.911 þúsund milljónum króna á fimm árum - frá 2009 til 2013 - eða að meðaltali 48,5 þúsund milljónum í hverjum mánuði. Þetta þýðir að frá falli fjármálakerfisins hafa útgjöld ríkissjóðs jafngilt 35,7 milljónum króna á hverja fjögurra manna fjölskyldu.
 
Þegar rýnt er í ríkisreikninga síðustu ára verður með engu móti hægt að halda því fram að forgangsröðun hafi ráðið för þegar útgjöld (fjárlög) ríkisins hafa verið ákveðin á hverju ári.
 
Á sama tíma og vegakerfið - lífæð atvinnu- og mannlífs um land allt - molnar niður í bókstaflegri merkingu hafa milljarðar runnið úr ríkissjóði í pólitísk gæluverkefni. Um leið og stjórnmálamenn tóku ákvörðun um að skera niður í heilbrigðiskerfinu var haldið áfram með ríkisrekið velferðarkerfi valinna atvinnugreina.
 
Það er nöturlegt að hugsa til þess að frá hruni hefur velferðarkerfi hinna fullfrísku verið varið betur en heilbrigðisþjónustan og samhjálpin við þá sem þurfa á raunverulegum stuðningi að halda.
 
Og ríkisrekstur stjórnmálaflokkanna lifir góðu lífi. »Blóðpeningar« Það er kaldhæðnisleg staðreynd að liðlega ein króna af hverjum tíu sem renna úr ríkissjóði skuli fara í að standa undir fjármagnskostnaði. Á umræddum fimm árum hefur ríkissjóður greitt alls 368 þúsund milljónir króna í vexti en fyrir þá fjárhæð væri hægt að reka Landspítalann í níu ár.
 
Fjármagnskostnaður ríkisins hefði dugað til að byggja fjóra nýja Landspítala og endurnýja húsnæði og tæki. Að meðaltali greiddu íslenskir skattgreiðendur liðlega sex þúsund milljónir króna í vexti í hverjum einasta mánuði.
 
Hægt er að reka Sjúkrahúsið á Akureyri í heilt ár og þremur mánuðum betur fyrir svipaða fjárhæð. Mánaðarlegur fjármagnskostnaður er svipuð fjárhæð og ríkissjóður lagði samtals á síðasta ári til Menntaskólans í Reykjavík, Menntaskólans á Akureyri, Menntaskólans að Laugarvatni, Menntaskólans við Hamrahlíð, Menntaskólans við Sund, Menntaskólans á Ísafirði, Menntaskólans á Egilsstöðum, Menntaskólans í Kópavogi, Kvennaskólans í Reykjavík og Háskólans á Akureyri.
 
Við getum sett »blóðpeningana« í annað samhengi: Frá 2009 til 2013 nam fjármagnskostnaður ríkisins liðlega 4,5 milljónum króna á hverja fjögurra manna fjölskyldu.
 
Ríkissjóður hefur þurft að leggja »blóðskatta« á einstaklinga og fyrirtæki til að standa undir kostnaði vegna skulda sem jafngildir liðlega 75 þúsund krónum í mánuði á hverja fjölskyldu, eða um 904 þúsund krónum á ári.
 
Að óbreyttu verður »blóðskatturinn« innheimtur á komandi árum í formi hærri skatta og lakari þjónustu og innviða.
 
Kostnaður vegna gríðarlegra skulda ríkisins er því þungur baggi. Villigötur fjárlaga Í október síðastliðnum hélt ég því fram á þessum stað að við hefðum ratað á villigötur þegar teknar væru ákvarðanir um ráðstöfun opinberra fjármuna.
 
Samkvæmt fjárlögum ársins 2013 samþykkti Alþingi að setja nær 136 þúsund milljónir króna í annað en það sem telst frumskylda ríkisins og voru vaxtagreiðslur þá ótaldar.
 
Á sama tíma var skorið niður í heilbrigðismálum, löggæslu og samgöngumálum, þjónusta við eldri borgara var látin sitja á hakanum og menntakerfið var skorið inn að beini.
 
Í stað þess að aðstoða þá sem standa verst að vígi við að lifa mannsæmandi lífi var annað sett í forgang. Ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks rétti kúrsinn nokkuð af við afgreiðslu fjárlaga fyrir yfirstandandi ár, en það er mikið verk óunnið.
 
Enn fara tæplega fjórar krónur af hverjum tíu úr ríkiskassanum í annað en það sem skiptir mestu og enn er sóun innan stjórnkerfisins, sem er of stórt og óhagkvæmt.
 
Markmið um hallalaus fjárlög er gott en nægir ekki eitt og sér til þess að lækka fjármagnskostnað ríkisins annars vegar og tryggja hins vegar raunverulega forgangsröðun útgjalda.
 
Það þarf að gjörbreyta vinnubrögðum við fjárlagagerðina, sem á fyrst og fremst að taka mið af grunnskyldum ríkisins og hefja umfangsmikla sölu ríkiseigna. Í viðtali við Morgunblaðið síðastliðinn laugardag hélt Guðlaugur Þór Þórðarson, varaformaður fjárl
 
aganefndar, því fram að yfirsýnin við fjárlagavinnuna væri ekki nógu góð. »Ég fullyrði að menn eru almennt ekki meðvitaðir um þróunina í ríkisfjármálum,« fullyrti þingmaðurinn. Undir þessi orð skal tekið. Tvær flugur Í samantekt Guðlaugs Þórs um þróun ríkisútgjalda frá 2007 til 2012 kemur vel fram hve mjög hallaði á heilbrigðisþjónustuna.
 
 Upplýsingar um liðlega sjö þúsund milljóna króna útgjöld til rannsóknanefnda Alþingis, umboðsmanns skuldara, stjórnlagaráðs, þjóðfundar, landsdóms og ESB-umsóknar frá hruni bankakerfisins sýnir betur en flest annað hve forgangurinn er orðinn brenglaður. Þingmenn gætu slegið tvær flugur í einu höggi þegar þing kemur saman í september.
 
Þeir gætu tekið lítið skref í átt að því að draga úr ríkisumsvifum og um leið forgangsraðað af skynsemi. Þeir gætu afnumið lög um fjármál stjórnmálasamtaka - hætt ríkisrekstri stjórnmálaflokkanna. Einhverjir gætu haldið fram að það væri táknrænt að »einkavæða« pólitíska starfsemi enda samrýmist ríkisrekstur stjórnmálanna illa hugmyndum um opið og frjálst þjóðfélag.
 
" Þarna er gripið á mörgum kýlum. Í stað þess að greiða svona svimandi upphæðir í fjármagnskostnað gæti ríkið sótt peningana sína í lífeyrissjóðina.
 
Taka hreinleg nægilegar þúsundir milljarða úr sjóðunum gegn kvittun upp að þeir hafi þarmeð greitt skatta af útgreiðslum úr sjóðunum sem þeir megi framvísa þegar þar að kemur.
 
Einfalt, en skilvirkt. Ríkisrekstur á stjórnmálaflokkunum er önnur vitleysan sem Sjálfstæðismenn létu litlu ljótu kommaflokkana þvæla sér út í.
 
Í stað þess að fjármál stjórnmálaflokka komi engum við, hvorki skattstofum né öðrum meðan ekki er um annað að ræða en frjáls félagasamtök sem eru eingöngu kostuð af almennum félagsmönnum eins og saumaklúbbar, þá er allt stjórnmálastarf á opinberu framfæri.
 
Þetta skipulag kallar á það að heilmargar hugsjónir verða útlægar og menn verða of latir til að nenna að berjast og of feitir til að flýja.
 
Svo lítill eldmóður er yfirleitt í litlu ljótu sérvitringaflokkunum að þeir geta fáu frá sér komið nema að fá að sjúga ríkisspenann.
 
Fjöldasamtökum eins og Sjáflstæðisflokknum er ekki vorkunn að krefjast starfa af sínum flokksmönnum. Þá mun líka gerð þeirra sem veljast til forystu breytast almennt frá því að verða puntudúkkur og dekurrófur til þess að verða alvöru stjórnmálamenn sem okkur vantar svo sárlega í stað fyrir þetta venjulega þinglið okkar sem á svo oftlega uppruna sinn í opinbera geiranum með verðtryggðu réttindin. Og verður þannig sjálfkrafa að varðhundum kerfisins.
 
Okkur vantar fólk sem verður að sanna sig í baráttunni í grasrótinni áður en það fær þingsæti fyrirhafnarlaust jafnvel með tilstyrk óskyldra þrýstihópa.
 
Þetta myndi fækka flokkum og koma meiri festu á stjórnmálin en nú er.
 
Það verður gaman þegar Óli Björn verður alvöru þingmáður og getur farið að beita sér sem slíkur
 
.////////////////////////////Ristuldur á ekki að gerst,en ég leifi mer, það nú og vona að Halldór fyrirgefi mér þetta,þessi grein er svo mikið betri en það ,sem ég ætlaði að skrifa um þetta mál ,svo ég bara segi hana eins og hún er ,og hefi mjög littlu við þetta að bæta,nema að taka undir ,hvert orða þarna,og vel það,ÓLi Björn segir það sem segja þarf,og við tökum undir,skuldabarsið er hörmung,og þarf að laga,((Halli gamli
 
 
 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 44
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 43
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband