Flutningur íbúðalána hefur mætt mótstöðu,auðvitað Bakarnir og mínir menn vildu leggja hann niður!!!!

Viðskipti | Morgunblaðið | 24.9.2009 | 6:30
Íbúðalánasjóður Stjórnvöld munu væntanlega fá frjálsari hendur til að samræma aðgerðir í þágu skuldsettra heimila ef íbúðalán bankanna verða færð yfir til Íbúðalánasjóðs. Þetta er líkast til ein af skýringunum á endurnýjuðum áhuga stjórnvalda á því að færa íbúðalánin, sem fyrst kom til álita fljótlega eftir bankahrunið síðastliðið haust og aftur um síðustu helgi.Eftir því sem næst verður komist er þetta þó einungis ein af fjölmörgum hugmyndum sem ráðherranefnd þriggja ráðherra og sérstök nefnd á þeirra vegum hefur verið að skoða, sem lið í lausn á skuldavandanum að undanförnu.

Forsvarsmenn bankanna hafa að því er næst verður komist tekið þessum hugmyndum misjafnlega og sumir verið lítt hrifnir. Óhætt er hins vegar að segja að margir bíði eftir niðurstöðum varðandi þessi mál, og þá helst eftir því að upplýst verði um frekari aðstoð við skuldsett heimili en nú þegar er í boði.

Flutningur á íbúðalánum bankanna til Íbúðalánasjóðs er auðvitað engin lausn á greiðsluvanda heimilanna. Frekari aðgerðir þurfa að koma til. Fyrir liggur að verði ekkert að gert muni vandi heimilanna magnast stórkostlega. Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra, hefur sagt að aðstoð við skuldsett heimili verði meðal fyrstu mála sem lögð verði fram þegar Alþingi kemur saman í næsta mánuði. Hætt er við að þeir verði fyrir vonbrigðum sem hafa trúað því að hægt verði að fara í allsherjar niðurfellingu, eða leiðréttingu, á höfuðstól skulda.//Undrar sig nokkur á þessu,Bankarnir og mínir menn vildi leggja hann niður á sínum tíma og sitja einir að þessum krásum sem þá voru,sem betur fer var það ekki gert/en núna malda þeir i móinn auðvitað vilja gemla með þetta áfarm,en vonandi verður af þessu að þessu veri öllu komið þarna/Halli gamli


mbl.is Flutningur íbúðalána hefur mætt mótstöðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 9
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 1045675

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband