25% lækkun höfuðstóls lánanna/Félagsmálaráherra gefur tóninn!!!!

Innlent | Morgunblaðið | 28.9.2009 | 5:45
Íslandsbanki Íslandsbanki hyggst bjóða viðskiptavinum sínum upp á að breyta gengistryggðum lánum sínum í óverðtryggð lán í krónum miðað við 25 prósenta lækkun höfuðstóls. Þá mun viðskiptavinum bankans, sem eru með hefðbundin verðtryggð lán, standa til boða að breyta lánum sínum í óverðtryggð lán.miðað við 10 prósenta lækkun höfuðstóls.

Þetta staðfesti Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, við Morgunblaðið í gær. Birna segir bankann einnig ætla að bjóða upp á þær leiðir sem stjórnvöld hafi unnið að vegna skulda heimilanna.

Ríkisskattstjóri hefur þegar tilkynnt Íslandsbanka að lækkun höfuðstólsins sé ekki skattskyld. Íslandsbanki hafði óskað eftir umsögn frá skattyfirvöldum til þess að fá fullvissu fyrir því að lækkun höfuðstólsins yrði ekki skattlögð. „Við vonum að hægt verði að ráðast í þessar aðgerðir sem allra fyrst. Samhliða þessum útfærslum munum við einnig taka fullan þátt í þeim aðgerðum sem stjórnvöld munu eiga frumkvæði að og verða eflaust kynntar betur á næstunni,“ sagði Birna í samtali við Morgunblaðið í gær.

Aðgerðir stjórnvalda, sem nú eru í undirbúningi, miða öðru fremur að því að létta greiðslubyrði lána þannig að hún verði sambærileg við greiðslubyrði á vormánuðum 2008. Frá þeim tíma hefur gengi krónunnar veikst um 60 prósent og afborganir því þyngst bæði af gengisbundnum og verðtryggðum lánum. Aðgerðirnar eiga að ná jafnt til húsnæðis- og bílalána. Þær verða kynntar á næstu dögum.

Stefnt er að því að úrræðin standi fólki til boða frá 1. nóvember, eða þegar áætlað er að endurreisn bankanna verði endanlega lokið.Þetta er gott svo langt sem það nær!!! en of litið og ekki fyrr en 1 nóv. það einnig of seint að mati þeirra sem eru að missa sitt allt/en kannski þetta verði meira/Halli gamli


mbl.is 25% lækkun höfuðstóls lánanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 8
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 1045631

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband