Farið verður fram á frekara gæsluvarðhald/þetta mál er eitthvað ekki í lagi!!!!

Farið verður fram á frekara gæsluvarðhald
Innlent | mbl | 28.10.2009 | 10:32

Málið hefur undið upp á sig.Gæsluvarðhald yfir sjö karlmönnum, sem eru í haldi lögreglunnar á Suðunesjum, rennur út síðdegis dag, en mennirnir eru grunaðir um að tengjast skipulagðri glæpastarfsemi. Ljóst þykir að farið verði fram á frekari gæsluvarðhald, a.mk. yfir hluta hópsins. Ákvörðun mun liggja fyrir síðar í dag. 
 það er  verið að yfirheyra fólk og vinna í málinu eins hratt og við getum til þess að undirbúa þetta í dag,“ segir  Jóhannes Jensson aðstoðaryfirlögregluþjónn í samtali við mbl.is. Aðspurður segir hann að farið verið fram á gæsluvarðhald yfir hluta hópsins. „Ég held að það sé alveg ljóst. Svo er verið að vinna í þessu til að átta sig betur á stöðunni.“ Tímasetningar munu liggja fyrir síðdegis.

Spurður um gang rannsóknarinnar segir Jóhannes að málin þokist áfram. „Þetta er umfangsmikið og hefur reynt mjög á okkur. Þetta hefur verið mannaflsfrek rannsókn og með ýmsa anga,“ segir hann.

Fleiri hafa ekki verið handteknir í tengslum við rannsókn málsins. Hvað varðar ákærur þá segir Jóhannes of snemmt að segja nokkuð um það. „Ef að málið vindur ekki eitthvað því meira utan á sig þá ættum við að fara ná utan um það,“ segir hann og bætir við að þá komist lögreglan vonandi hraðar að niðurstöðu.

Lögreglan á Suðurnesjum hefur notið aðstoðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, á Snæfellsnesi og ríkislögreglustjóra við rannsókn málsins.

Málið hefur undið upp á sig að undanförnu, en t.d. leikur grunur á að bruni, sem varð nýlega í Grundarfirði, tengist hugsanlega skipulagðri glæpastarfsemi sem lögreglan rannsakar. Auk þess tengjast ýmis konar önnur afbrot rannsókninni, t.d. mansal, fjársvik, fíkniefni og þjófnaðir.//þetta mal er eitthvað sem maður ekki alveg skilur!!Fyrst bara mannsal og þessi yfirmaður löggæslu á suðurnesjum er alltaf að koma í miðla og segja raunar ekkert ????,bara koma fram þetta hlýtur að vera athyglissjúk að mínu mati, !!!!einnig er þetta mal blásið upp meir og minna i millum/það er spúki eitthvað við þetta allt þetta mál allt/Halli gamli


mbl.is Farið verður fram á frekara gæsluvarðhald
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 46
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband