ESB-umsóknin þungbær/sér maður tár á hvarmi???????

ESB-umsóknin þungbær
Innlent | mbl.is | 29.10.2009 | 14:36

Jón Bjarnason. Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, sagði á aðalfundi Landssambands íslenskra útvegsmanna í dag, að hann gæti sagt það alveg heiðarlega og beint frá hjartanu, að aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu hafi verið sér þungbær svo ekki sé meira sagt.
Ég hef þó lagt á það áherslu að sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið stæði sem best að allri vinnu sem af því er krafist í aðildarferlinu," sagði Jón.

Hann sagði að fljótlega þurfi að skipa aðalsamninganefnd og samninganefndir á fagsviðum vegna væntanlegra aðildarviðræðna. Hans bjargfasta skoðun væri, að nauðsynlegt sé að hver samninganefnd fái strax samningsskilyrði í umboð sitt til að vinna eftir og þau skilyrði liggi algjörlega ljós fyrir af hálfu sjávarútvegsins. Útilokað væri að samþykkja að þessar nefndir verði settar af stað umboðslausar og þeirra eina verkefni verði að ná bara samningi.

„Ástæða þessa er auðvitað sú að komi til þess að brotni á málefnum líkt og full og óskoruð yfirráð Íslendinga yfir sínum eigin fiskimiðum, þá verði því málefni ekki ýtt til hliðar þar til síðast. Þess í stað verði fengin niðurstaða strax um svo mikilvæg málefni þannig að ríkisstjórn, Alþingi, hagsmunaaðilum og þjóðinni allri gefist færi á að taka afstöðu til hversu langt eigi að ganga," sagði Jón m.a.

Adolf Guðmundsson, formaður LÍÚ, sagði á fundinum að afstaða útvegsmanna til aðildar að ESB byggi á þeim grundvallarsjónarmiðum að Íslendingar fari einir með forræði yfir fiskimiðunum, hafi samningsforræði við skiptingu veiðiréttar úr deilistofnum og tali eigin máli á vettvangi alþjóðastofnana. Mikilvægt væri að tryggja að arður af nýtingu auðlinda skili sér til íslensks samfélags.

„Ég er þess fullviss að þjóðin mun aldrei samþykkja aðildarsamning sem felur í sér afsal á yfirráðum yfir fiskveiðiauðlindinni," sagði hann. ///sér maður ekki tár á hvarmi????"það er gott að tala tungum tveim og tala sitt með hvorri" segir máltækið!!! hvernig er þetta hægt að gera svona játningar án þessa að segja af sér,það gerði þó Ögmundur,en kæri Jón kveðjan innpökkuð er segir i kvæðinu/Þetta er alveg til að bita hausinn af skömminni,að manni finnst það að halda i stjórnarsamstarfið út á þetta hlytur að koma manni um koll fyrr enn síðar,///Halli gamli


mbl.is ESB-umsóknin þungbær
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 1045686

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband