Prestur fær dæmdar bætur/nógir peningar þarna !!!!!!

Prestur fær dæmdar bætur
Innlent | mbl.is | 29.10.2009 | 13:58

Sr. Sigríður Guðmarsdóttir.Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt íslensku þjóðkirkjuna til að greiða sr. Sigríði Guðmarsdóttur rúmlega 1,6 milljónir króna í bætur en talið var að jafnréttislög hefðu verið brotin þegar skipað var í embætti sendiráðsprests í Lundúnum árið 2003.

Hæstaréttur hafði áður komist að þeirri niðurstöðu, að kirkjan bæri skaðabótaábyrgð gagnvart Sigríði vegna stöðuveitingarinnar.

Sigríður sótti um embætti sendiráðsprests og karlmaður sótti einnig um stöðuna og fékk. Var það í samræmi við niðurstöðu sérstakrar hæfisnefndar. 

Sigríður leitaði til jafnréttisnefndar þjóðkirkjunnar og komst nefndin að þeirri niðurstöðu að við val á presti í embættið hefði jafnréttisáætlun kirkjunnar ekki verið virt.  Sigríður höfðaði síðan mál gegn biskupi Íslands fyrir hönd íslensku þjóð­kirkjunnar og krafðist viðurkenningar á skaðabótaskyldu.

Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu í nóvember 2006, að Sigríður hefði sýnt fram á að hún hefði verið jafnhæf eða hæfari karlinum til að gegna embætti sendiráðsprests í London.  Þar sem engin kona hafi gegnt prestsstarfi erlendis hefði kirkjan þurft að sýna fram á að aðrar ástæður en kynferði hafi legið til grundvallar þeirri ákvörðun að skipa karlinn í embættið.  Þar hefði þjóðkirkjunni ekki auðnast. Taldi Hæstiréttur að nægilegar líkur hefðu verið leiddar að því að Sigríður hefði orðið fyrir fjárhagstjóni sem þjóðkirkjan i bæri skaðabótaábyrgð á.

Í kjölfarið höfðaði Sigríður skaðabótamál gegn þjóðkirkjunni  og krafðist  mismunar þeirra kjara, sem Sigríður naut sem sóknarprestur í Grafar­holtsprestakalli og þeirra sem hún hefði notið sem sendiráðsprestur í London. Féllst héraðsdómur á þá kröfu í dag.  Aðalkrafa Sigríðar hljóðaði upp á 14,8 milljónir, þ.e. mismun launa auk staðaruppbótar og húsaleigustyrks. Á það var ekki fallist heldur á varakröfuna, 1,64 milljónir sem var óumdeildur mismunur á laununum////Nú er mælirinn fullur að mínu mati.1,6 milljónir þarna og 20 milljónir annarstaðar,svona brul á ekki að eiga sér stað,ef aðskilnaður yrði væri þetta í hendi kvers safnaðar og engin Biskupsstofa sem öllu réði þarna ,þetta verður að fara at taka á þessum vanda fyrr en seinna það er einmitt tími til þessa núna að breyta öllu kerfinu,þessi safnaðagjöld eru nóg til að reka þetta 14 þus. á mann!!það ætti að duga til að reka kirkjur og söfnuði ef ekki þa´bara hækka gjöldin til þeirra sem vilja hafa kirkjur en hinir trúlausu borga ekki ,þetta er ekki þegnskilda að vera i Trúarsöfnuði,svo er hægt að meta þetta hvað ríkið skuldaði hverjum söfnuði svo i rólegheitum því kirkjurnar eru dregnar frá þessu  er það ekki!!!Halli gamli


mbl.is Prestur fær dæmdar bætur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þú þarft að borga þetta ef þú ert í þjóðkirkju... trú byggist á betli.. Sússi sjálfur vann aldrei handtak, betlaði bara út og suður.

Disclaimer
Sússi var ekki til

DoctorE (IP-tala skráð) 29.10.2009 kl. 16:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 1045702

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband