Sigldi undir Stórabeltisbrú/stærsta farþegaskip heims !!!!!

Sigldi undir Stórabeltisbrú
Erlent | mbl.is | 1.11.2009 | 7:57

Oasis of the Seas var smíðað í Finnlandi.Stærsta farþegaskip heims, Oasis of the Seas, sigldi undir Stórabeltisbrú laust eftir miðnætti í nótt að dönskum tíma. Fjöldi fólks fylgdist með siglingunni en ljóst var að skipið myndi með naumindum komast undir brúna.

Skipið er 360 metra langt og 72 metra hátt en Stórabeltisbrúin er 65 metrar þar sem hún er hæst. Hins vegar er hægt að draga reykháfa skipsins niður líkt og sjónpípur á kafbáti. Þá var skipinu siglt undir brúna á fjöru og á mikilli ferð þannig að það lægi sem dýpst í sjónum.

Verið er að sigla skipinu frá Turku í Finnlandi, þar sem það var smíðað, í heimahöfn í Fort Lauderdale á Flórída.  

Skipið kostaði jafnvirði nærri 200 milljarða króna og eru niðurdraganlegu reykháfarnir einir sagðir hafa kostað 300 milljónir. Skipið er 16 hæðir og tekur um 6000 farþega. Áhöfnin telur 2200 manns. Jómfrúrferð skipsins verður í desember.////þetta er glæsilegt allt og gaman að Finnar skuli smiða þennan risa skipakost/Við Íslendingar höfum i reynd bar átt eitt svona litið bara, skemmtiferðaskip  M/s Gullfoss sem var a´ferð her á millum landa i nokkur ár,i mynni er manni einnig að  m/s Hekla og  m/s Esja fóru nokkrar ferðir til norðurlanda um sumur nokkur/en maður fór aldrei með þeim því miður,þetta væri gaman að eiga eitt svona mátulega stórt fyrir okkur að sigla á á sumrin og vera ú suðurhöfum á veturna!!! en þetta kosta mikið,látum okkar bara dreyma !!!Maður hefur farið 3-4 sinnum i Krús frá Miami 3-4 daga  ferðir þetta er lúxus allt þarna um borð/en þetta stóra skip tekur okkur íslendinga alla i 53 ferðum er það ekki stórt jú maður hræðist stærðina"!! kannski kemur það hingað næsta sumar/ Halli gamli


mbl.is Sigldi undir Stórabeltisbrú
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 1045686

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband