1.11.2009 | 14:31
Getur ekki samþykkt Icesave/er það nokkur undur ???????
Innlent | mbl.is | 1.11.2009 | 13:01
Lilja Mósesdóttir, þingmaður Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs, sagði í þættinum Silfur Egils í dag, að hún hefði komist að þeirri niðurstöðu sl. föstudag að hún gæti ekki samþykkt frumvarp, sem nú liggur fyrir Alþingi um Icesave-skuldbingarnar.
Þegar frumvarpið var kynnt í þingflokki Vinstri grænna þá hugsaði ég með mér: Ég samþykki þetta, það er ekki hægt að komast lengra. Ég sagði félögum mínum að ég samþykkti að þetta færi inn í þingið og fengi þinglega meðferð en ég hefði fyrirvara, ég ætlaði að skoða málið betur.
Síðan les ég frumvarpið sem núna liggur fyrir þinginu og ég get bara ekki samþykkt þetta," sagði Lilja. Hún sagði einnig, að ekki lægju fyrir skuldaþolsútreikningar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins fyrir Ísland en þeir myndu sýna að Íslendingar muni eiga erfitt með að standa undir Icesave-skuldbindingunum.
Lilja sagðist áfram styðja ríkisstjórnina þrátt fyrir þessa afstöðu til Icesave-málsins.
Þingmenn stjórnarflokkanna eru samtals 34 á Alþingi en þingmenn stjórnarandstöðu 29. Fleiri þingmenn VG en Lilja hafa lýst efasemdum um Icesave-samningana, þar á meðal Ögmundur Jónasson, sem ekki hefur ekki upplýst um afstöðu sína til frumvarpsins nú.
Líta á afstöðu sjálfstæðismanna sem svik
Lilja sagði í Silfri Egils, að hún hefði fengið að vita það, rétt áður en hún átti að ýta á atkvæðahnappinn þegar fyrra Icesave-frumvarpið var afgreitt á Alþingi síðsumars, að sjálfstæðismenn ætluðu að sitja hjá við endanlega afgreiðslu málsins þótt þeir hefðu tekið þátt í að semja ýtarlega fyrirvara við ríkisábyrgð vegna Icesave-skuldbindinganna.
Ég ákvað samt að halda mínu striki þar sem ég hafði tekið þátt í að gera sérstaklega efnahagslegu fyrirvarana. Ég labbaði síðan niður ásamt mínum félögum í Vinstri grænum og lamdi í borðið. Við upplifðum þetta sem svik (...) og veltum því fyrir okkur hvort Sjálfstæðisflokkurinn hafi verið að finna leið til að fá okkur Vinsti græn til að samþykkja Icesave-samninginn svo þeir þyrftu sjálfir ekki að óhreinka sig við það," sagði Lilja./var að horfa á þáttinn,og verð að segja að hún fer með rétt mál,sjálfstæðismenn áttu að vera á móti en ekki sitja hjá á athvæðgreiðslunni um þetta mál/svo finnst manni hún staðföst að vilja ekki samþykkja þetta nú vegna þessa að við getum aldrei borgað þetta,þetta er okkur ofraun og við getum bara ekki látið þá -Breta og Hollendinga einhliða setja okkur endanlega á hausinn/skýrara getur þetta ekki verið/þarna kemur kona sem stendur á sínum skoðunum og þær vonandi nái fram að ganga/Halli gamli
Getur ekki samþykkt Icesave | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 17
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ekki er ég hissa
Ásdís Sigurðardóttir, 1.11.2009 kl. 14:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.