Tógómenn ætla að spila/það er rétt ákvörðum, að mínu mati !!!!!

Tógómenn ætla að spila
Íþróttir | mbl.is | 10.1.2010 | 9:08

Landslið Tógó. Markvörðurinn Kodjovi Dodji Obilale, sem... Leikmenn landsliðs Tógó segja að þeir ætli að spila í Afríkukeppninni sem hefst í Angóla í kvöld. Í gær var lið þeirra dregið útúr keppninni í kjölfarið á skotárás á rútu þess þegar það var nýkomið yfir til landamæri Angóla. Þrír eru nú látnir eftir árásina og tveir leikmenn eru talsvert særðir.

Thomas Dossevi, leikmaður Tógó, sagði við fréttastofuna AFP að liðsmenn vildu vera um kyrrt í Angóla í minningu þremenninganna sem létu lífið og spila fyrir hönd þjóðar sinnar. Alaixys Romao sagði við franska blaðið L'Equipe að leikmennirnir vildu ekki flýja af hólmi eins og heiglar.

Tógómenn hafa krafið Angólamenn skýringar á skotárásinni sem átti sér stað í héraðinu Cabinda, aðal olíuframleiðslusvæði Angóla, en þar hafa jafnframt verið átök um langt árabil. Frelsishreyfing héraðsins krefst sjálfstæðis og hún hefur lýst árásinni á hendur sér. Angólamenn hafa aftur á móti lýst yfir furðu sinni á þeirri ákvörðun Tógómanna að fara landsleiðina til leiks og láta ekki vita af ferðum sínum./// mjög svo réttlát ákvörðun að láta ekki eyðileggja iþróttina og anda manna í henni,þetta er þeirra ákvörðun og ber að virða/þeir eru menn að meiri,heiðra þá látnu og særðu/Halli gamli


mbl.is Tógómenn ætla að spila
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband