Fréttaflutningur einhæfari eftir hrun/það er satt ,mikið einhæfur!!!!

Fréttaflutningur einhæfari eftir hrun
Innlent | mbl.is | 3.5.2010 | 10:36

Geir H. Haarde og Björgvin G. SigurðssonVerulegar breytingar hafa orðið á fréttum fyrir og eftir bankahrun. Fréttaflutningur hefur orðið einhæfari og samdráttur í fréttum verið verulegur. Þannig hefur magn innlendra frétta minnkað um 11%, einna helst á kostnað þess að dagblöð eru nú færri, smærri og sjaldnar gefin út. Þetta er meðal niðurstaðna fjölmiðlarannsóknar sem Creditinfo vinnur að

Rúmlega 10 þúsund fréttir af Icesave

Sem dæmi um einsleita umræðu hefur fréttum um efnahagsmál fjölgað um 82% frá bankahruni og ríflega 10.000 fréttir fjallað um Icesave, að því er segir í rannsókn Creditinfo.

Á einu og hálfu ári fyrir bankahrun birtust 100 fréttir um Icesave. Á ríflega einu og hálfu ári frá bankahruni hafa birst 10.130 fréttir um Icesave.

Viðskiptafréttir hafa dregist saman um 34% eftir bankahrun. Fréttum um efnahagsmál hefur fjölgað um 82% á sama tíma.

Nýleg könnun sýnir að tæplega helmingur þjóðarinnar hefur breytt venjum sínum hvað varðar það að fylgjast með fréttum nú samanborið við fyrir bankahrun. Þá sýna niðurstöður rannsóknar Creditinfo að samband er á milli þess að finna fyrir þyngri fjárhagsstöðu og því að fylgjast öðruvísi með fréttum nú en áður.

Svo virðist sem viðbrögð við áhyggjum af fjárhag eða fjárhagserfiðleikar geti endurspeglast í því að fólk fer ýmist að fylgjast meira eða minna með fréttum, að því er segir í tilkynningu.

Að meðaltali birtast nú tæplega níu þúsund innlendar fréttir á mánuði, í samanburði við um tíu þúsund innlendar fréttir á mánuði fyrir bankahrun. Samdrátturinn felst í minna magni dagblaðagreina því ljósvakafréttum hefur fjölgað þrátt fyrir styttingu ýmissa fréttatíma. Tímabundinn fréttaþáttur Skjás 1 og mbl.is er ekki talinn með.

Samanburður á meðaltalsfjölda frétta fyrir og eftir bankahrun sýnir að dagblaðaefni hefur dregist saman um 16%. Á sama tíma hefur ljósvakafréttum fjölgað um 7%. Þessi mikli samdráttur á dagblaðamarkaði hefur leitt til þess að meðaltalsfjöldi frétta á mánuði hefur dregist saman um 10% á tilteknu tímabili////þetta hefur verið mjög svo einhæft sem þarna synir og alt á sama vegin hvernig má þetta vera ,það er Skírslan nú og ekkert annað,og styrkir sem voru löglegir og reynt að koma mönnum i skitin.svona einhlít er miðlum og því opinbera til skammar ,en svo á þetta að vera dropin holar steininn að eyðileggja það sem gott er það er  mottóið,maður er ekki sammmál asvo vinnubrögðum nema siður sé/Halli gamli

 


mbl.is Fréttaflutningur einhæfari eftir hrun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband