Nýtt hótel við höfnina/er ekki nóg komið af svona draumum ????

Nýtt hótel við höfnina
Innlent | mbl.is | 11.2.2011 | 18:00

Í nýja hótelinu verða 111 herbergi, bar og veitingaaðstaða.Nýtt hótel, Icelandair Hotel Marina, verður opnað við Mýrargötu 2-8 vorið 2012. Í húsinu verða 111 herbergi, líkamsræktaraðsaða ásamt bar og veitingaastöðu á jarðhæð.

Icelandair hótel sendu frá sér svohljóðandi fréttatilkynningu:

„Samkomulag hefur tekist með Icelandairhótelum og Slippnum fasteignafélagi ehf. um hótelrekstur í fasteigninni að Mýrargötu 2 - 8, við gömlu höfnina í Reykjavík. Slippurinn fasteignafélag ehf. hefur gert samning við J.E Skjanna byggingaverktaka ehf. um alla framkvæmd verksins.

Icelandairhótel Reykjavík Marina verður opnað vorið 2012. Hótelið mun hýsa 111 herbergi, líkamsræktaraðstöðu fyrir hótelgesti, ásamt bar og veitingastað á  jarðhæð, sem verður óvenju rúmgóð og nýstárleg.

Fyrir liggja teikningar að skemmtilegu hóteli með nútímalegu ívafi í hönnun og rekstri. Markmiðið er að skapa vettvang þar sem erlendir ferðamenn geta hitt og samglaðst með heimamönnum á skemmtilegum stað, þar sem fjölbreytileiki og nýjungar í þjónustu og afþreyingu verða allsráðandi. Áhersla verður lögð á lifandi, skapandi umhverfi, sem veitir ferðamönnum innsýn í mannlíf Reykjavíkur, og það helsta sem þar er á döfinni hverju sinni.

Slippurinn er frábær staðsetning fyrir hótel, steinsnar frá iðandi mannlífi miðborgarinnar á einum besta útsýnisstað Reykjavíkur. Sú uppbygging ferðaþjónustu, veitingastaða og markaða sem átt hefur sér stað á undanförnum misserum við höfnina er kjörinn vettvangur fyrir nýja gistingu í borginni.

Það er mikill akkur fyrir hafnarsvæðið að sú uppbygging sem þar hefur átt sér stað í þjónustu vaxi og dafni enn frekar, og að hafnarsvæðið nái að sameinast kjarna miðbæjar og þannig mynda stærri og öflugri þjónustukjarna til handa ferðamönnum sem sækja borgina heim.

J.E Skjanni byggingaverktakar ehf er alhliða verktakafyrirtæki sem hefur víðtæka reynslu af hvers lags verkefnum á sviði nýbygginga og viðhalds. Eigendur J.E Skjanna byggingaverktaka ehf. eru Jens Sandholt og Einar S. Ágústsson og hafa þeir starfað við framkvæmda- og byggingastjórn frá árinu 1984

Icelandairhótel eru leiðandi keðja gæðahótela, sem samanstanda af alls níu hótelum í heilsársrekstri um allt land. Önnur hótel keðjunnar eru Loftleiðir, Flughótel, Hamar, Akureyri, Hérað, Klaustur, Hengill og Flúðir.“/////það hlaut að koma þetta með hótelið,ein og um var talað um daginn að það vanti ekki hótel og sali þegar þeir sem reka svona fyrir sögðu nóg ,og mikið meira en það væri til að slíku og það er sennilega rétt næstu árin!! en þessi staður er sá sem ekkert hótel ættiað vara á ,þarna var annað elsta  hlutfélag á Íslandi stofnað 1902 Slipplagið i Rvík h/f og þarna hefi átt að ver byggaðarsafn þessa og smá slippur áfram,nei þessi menning er semsagt ekkert nema hótel og barir,er ekki nóg að þeim þarna i 101 fyrir,þetta er ein skömm og ekkert annað við gamla tíman svo er verið að smiða hjalla gamla og hirða og setja út um allt,en saga fiskveiða sem við lifum a´að mestu og gerum enn er búin og geymd/Halli gamli


mbl.is Nýtt hótel við höfnina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 44
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 41
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband