Samstarf um atvinnumál/en er sviðsett eitthvað sem ekkert er að marka????

Samstarf um atvinnumál
Innlent | mbl.is | 11.2.2011 | 18:06

Þjóðmenningarhúsið við Hverfisgötu, Ríkisstjórnin hefur að tillögu forsætisráðherra ákveðið að setja á fót samstarfsvettvang um aðgerðir í atvinnu- og vinnumarkaðsmálum.

„Mikilvægasta verkefni okkar næstu misserin er að fjölga störfum og auka hagvöxt og um það verkefni voru menn að sameinast hér í dag," er haft eftir Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu.

Samstarfsvettvangurinn byggir á stefnumörkunarskjalinu Ísland 2020 – sókn fyrir atvinnulíf og samfélag og starfar í umboði nýskipaðrar ráðherranefndar í atvinnumálum. Ráðherranefndin og fulltrúar nýskipaðra vinnuhópa komu saman til fyrsta fundar í Þjóðmenningarhúsinu í dag.

Hóparnir eru skipaðir fulltrúum tilnefndum af hlutaðeigandi ráðuneytum, öllum þingflokkum, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Samtökum atvinnulífsins, Alþýðusambandi Íslands, Bandalagi háskólamanna, BSRB, Kennarasambandi Íslands, Samtökum starfsmanna fjármálafyrirtækja og Bændasamtökum Íslands. Jafnframt verða kallaðir til setu í hópunum sérfræðingar sem búa yfir reynslu og þekkingu á sviði atvinnu- og vinnumarkaðsúrræða.

Sigurður Snævarr, ráðgjafi forsætisráðherra í efnahags- og atvinnumálum, mun stýra hópi um atvinnustefnu og sköpun starfa og Runólfur Ágústsson, formaður stjórnar Vinnumálastofnunar, mun stýra hópi um vinnumarkaðsúrræði./////er nokkur sem trúir orðið á þetta hjal um meiri vinnu og framkvæmdir þegar allt er stoppað sem hlægt er að gera,Jóhanna eitthvað trúverðugri en hefur verið er það virkilega??? nei það heldur maður ekki,að er það bara af því að hún og Steingrímur vilja borga Icesave að allt fellur fyrir fótum þeim,og ef svo er er maður ennþá vissari um að ekkert er að marka þetta fremur venju,en samt skal manninn reyna og skoða hvað kemur þarna út ,ekki ma´maður vera um of vongóður en ekki loka á það ,lifa i von það er okkar mottó nú,en sennilega kosningar samt no 1 ///Halli gamli


mbl.is Samstarf um atvinnumál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 1045680

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 46
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband