Véfengir kosti vatnsþambsins/ andstæðar kenningar okkar lækkna flestra???

Véfengir kosti vatnsþambsins
Tækni & vísindi | mbl.is | 19.7.2011 | 11:14

Ósannað er að mikil vatnsdrykkja sé heilsusamleg.Mikið vatnsþamb er ekki jafn heilsusamlegt og fullyrt hefur verið fram, að því er breski læknirinn Margaret McCartney skrifar í British Medical Journal. Hún skrifar greinina í tilefni af ársfundi samtakanna Hydration for Health (H4G) í bænum Evian í Frakklandi.

Fyrirtækjasamsteypan Danone stofnaði H4H samtökin en hún selur m.a. flöskuvatn undir merkjunum Evian og Volvic að sögn McCartney. 

Hún segir að ráðlegging um að drekka 1,5-2 lítra af vatni á dag skorti vísindalegan stuðning og vitnar í leiðara úr vísindariti bandarískra nýrnasérfræðinga frá 2008. Þar segir m.a. að engar skýrar sannanir séu fyrir kostum aukinnar vatnsdrykkju. 

Norski vefurinn forskning.nofjallar um grein McCartney og ber efni hennar undir Johanne Sundby, prófessor í lýðheilsufræðum við Óslóarháskóla. Hún segir að ekki hafi verið færðar neinar sönnur á heilsusamleg áhrif þess að drekka mikið vatn.

„Það leiðir fyrst og fremst til þess að maður þarf að pissa meira,“ segir Sundby prófessor. „Það gefur ekki betri húð, hjálpar ekki við að hreinsa líkamann af úrgangsefnum og gefur ekki meiri einbeitingu.“///// þetta er í berhögg við það sem manni er sagt af læknum hérlendis algjörlega!!!skrítið hvernig þetta má snúast alveg við,en við skoðum þetta bara og samærumst,og ef rétt reynist förum við eftir því/Halli Gamli


mbl.is Véfengir kosti vatnsþambsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 7
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 1045657

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband