Framarar sækja meistarana heim//það verður fjör í kvöld ,spyrjum að leikslokum????

Framarar sækja meistarana heim
Íþróttir | Morgunblaðið | 26.9.2011 | 12:30
Örn Ingi Bjarkason sækir að marki Framara. Flautað verður til leiks í úrvalsdeild karla í handknattleik í kvöld með heilli umferð, fjórum leikjum.

Leikmenn Aftureldingar og deildarmeistarar Akureyrar handboltafélags ríða á vaðið að Varmá í Mosfellsbæ klukkan 18.30. Klukkustund síðar hefjast síðan þrír leikir. Nýliðar Gróttu taka á móti bikarmeisturum Vals í íþróttahúsinu á Seltjarnarnesi. HK mætir Haukum í Digranesi og loks leiða Íslandsmeistarar FH og Framarar saman hesta sína í Kaplakrika í leik umferðarinnar að margra mati.

Talsverð eftirvænting ríkir fyrir viðureignina í Kaplakrika. Miklar breytingar hafa átt sér stað á báðum liðum frá því í fyrra. FH-ingar sáu á bak átta leikmönnum í sumar eftir að hafa fagnað sínum fyrsta Íslandsmeistaratitli í handknattleik karla í 19 ár. Meðal þeirra sem farnir eru má nefna Ólaf Andrés Guðmundsson, Ásbjörn Friðriksson, Loga Geirsson og Sigurgeir Árna Ægisson. Til þess að fylla í skörðin hafa m.a. komið Ragnar Jóhannsson, markahæsti leikmaður N1-deildarinnar í fyrra, Andri Berg Haraldsson og Hjalti Pálmason.

Fram-liðið hefur einnig gengið í gegnum miklar breytingar frá síðustu leiktíð þar sem a.m.k. fimm leikmenn hafa róið á önnur mið. Fjórir leikmenn hafa gengið í raðir Safamýrarliðsins fyrir leiktíðina, þar á meðal landsliðsmaðurinn Ingimundur Ingimundarson.

Akureyringar stilla upp nær óbreyttu liði frá síðustu leiktíð þegar þeir urðu deildarmeistarar og höfnuðu í öðru sæti í bikarkeppninni og í úrslitakeppninni. Sömu sögu er ekki hægt að segja af Mosfellingum.

HK hefur styrkt lið sitt frá síðasta keppnistímabili en Haukar hafa hinsvegar orðið fyrir skakkaföllum og m.a. séð á bak tveimur markahæstu leikmönnum sínum á síðustu leiktíð.///spennan eykst!!! og við vitum ekki hvað út kemur en þetta er gaman að við skulum fá þessi lið öll með nýtt fólk flest en það er vonandi að við sjáum góðan handbolta ekki veitir af,kem inn á eftir að úrslit verða ,en þau eru að verða búin í Mosfellsbæ það er Akureyri að vinna 20-31 svo FH -23- Fram-28-Grótta 21- valur21--svo HK 22-Haukar 27----/Halli gamli


mbl.is Framarar sækja meistarana heim
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 1045797

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband