Varaformaður SA: Stjórnvöld eiga að gefa atvinnulífinu vinnufrið/þetta er rétt hjá Grími !!!en réttara hjá Vilmundi Formanni,að gefa skít í Ríkisstjórn Jóhönnu!!!

Vilmundur Jósefsson.
Grimur Sæmundsson
Jóhanna Margrét Gísladóttir skrifar:
Varaformaður Samtaka Atvinnulífsins vill að stjórnvöld gefi atvinnulífinu vinnufrið í stað þess að standa sífellt í vegi fyrir uppbygginu með tortryggni. Núverandi atvinnuleysi kostar atvinnulífið 20 milljarða króna á ári.

Samtök Atvinnulífsins stóðu í dag fyrir umræðufundi um hvernig nýta megi sóknarfæri í atvinnulífinu. Á fundinum lýsti formaður samtakanna Vilmundur Jósefsson óánægju sinni með aðgerðir ríkisstjórnarinnar og sagði samtökin ekki geta treyst orðum hennar né skriflegum yfirlýsingum þar sem aldrei sé við þær staðið. Þá sagði hann sjálfgefið að Samtök atvinnulífsins myndu ekki hafa frumkvæði að neinum frekari samskiptum við ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur.

Á fundinum vakti varaformaður samtakanna einnig athygli á kostnaði atvinnuleysis fyrir atvinnulífið.

„Það er auðvitað atvinnulífið sem stendur straum af atvinnuleysisbótum í gegnum atvinnuleysistryggingarsjóð og í dag er atvinnulífið að greiða 20 milljarða króna á ári vegna atvinnuleysis sem er gríðarlegur kostnaður sem gæti annars nýst til uppbyggingar í fyrirtækjunum," sagði Vilmundur.

Hann segir stjórnvöld sífellt bregða fæti fyrir uppbyggingu atvinnu, til dæmis með því að fæla frá áhugasama fjárfesta með tortryggni

„Alltaf þegar eitthvað kemur upp er sett spurningarmerki hvort að áhugi fjárfestanna sé ekki eitthvað annarlegur eða það sé einhver fiskur undir steini í stað þess að reyna að vinna með þeim aðilum sem sýna áhuga á að fjárfesta hér og taka þátt í að byggja upp atvinnulífið," sagði Vilmundur.
//þetta er hár rétt hjá Vilmundi og og litlu við þetta að bæta ,það segir sig sjálft að við þessar aðstæður er ekki hægt að starfa/Halli Gamli

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ásdís Sigurðardóttir, 27.9.2011 kl. 12:29

2 Smámynd: Haraldur Haraldsson

 Kveðja

Haraldur Haraldsson, 27.9.2011 kl. 17:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 1045700

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband