Spá 5,9% verðbólgu//Alvaran þarna er mikil, og margur þolir þetta als ekki,burt með verðtrygginguna!!!

Spá 5,9% verðbólgu Viðskipti | mbl.is | 15.5.2012 | 14:55 Greiningardeild Arion banka spáir 0,4% hækkun vísitölu neysluverðs (VNV) í maí. Gangi spáin eftir mun ársverðbólgan nema 5,9% í maí samanborið við 6,4% í apríl. Hagstofan birtir niðurstöðu fyrir verðmælingu í maí á fimmtudaginn í næstu viku. Bráðabirgðaspá greiningardeildar fyrir næstu þrjá mánuði tekur þó nokkrum breytingum og aldrei 
Heimsmarkaðsverð á eldsneyti hefur lækkað um 9% frá síðustu mælingu.
þessu vant er stefnubreytingin niður á við, segir í Markaðspunktum greiningardeildar Arion banka. Bauhaus áhrif í verðbólgumælingu Þrátt fyrir að gengi krónunnar hafi styrkst á síðustu vikum þá munu áhrifin af veikingu krónunnar mánuðina á undan halda áfram að smitast út í verðlag og eru aðaláhrifavaldar verðbólgunnar í maí. Að því sögðu liggur þó fyrir að hríðlækkandi hrávöruverð á erlendum mörkuðum mun hafa veruleg áhrif til lækkunar VNV, sem kemur einna helst fram í lægra eldneytisverði, segir í Markaðspunktum Arion banka. „Að okkar mati mun þróun húsnæðisliðarins skipta miklu máli á komandi mánuðum en hann stuðlaði að mikilli hækkun í síðustu mælingu og má telja líklegt að svo verði áfram á næstu mánuðum. Þó ber að hafa í huga að opnun Bauhaus mun að einhverju leyti koma fram í lægri viðhaldskostnaði á húsnæði og einnig í lægra verði á byggingarvörum og ýmsum tólum og tækjum. Áhrifin gætu því komið fram með margvíslegum hætti á næstu mánuðum en erfitt er segja til um hversu sterk áhrifin verða. Við gerum ráð fyrir einhverjum áhrifum vegna þessa í bráðabirgðaspánni fyrir næstu mánuði,“ segir í verðbólguspá Arion banka. Bensínlítrinn hefur lækkað um 10 krónur og álagning lítil hér Heimsmarkaðsverð á eldsneyti hefur lækkað um 9% frá síðustu mælingu. Þetta hefur skilað sér í um 10 kr. lækkun bensínlítrans. „Við teljum hins vegar lítið svigrúm til frekari lækkana eins og staðan er í dag þar sem svo virðist vera sem að olíufélögin hafi lækkað álagningu umtalsvert þegar mesta hækkunarhrinan gekk yfir (veiking krónu og heimsmarkaðsverðs). Álagning eldsneytis á Íslandi er því eins og staðan er í dag lítillega undir sögulegu meðaltali,“ segir í spánni. Húsnæðisliðurinn í heild sinni hækkaði VNV um 0,18% í apríl. Liðurinn „reiknuð húsaleiga“ (markaðsverð húsnæðis) tekur mið af þriggja mánaða meðaltali fasteignaverðs á landinu öllu. Gríðarleg lækkun á fasteignaverði utan höfuðborgarsvæðisins í byrjun þessa árs (hefur um 20% vægi) dettur því nú út úr meðaltalinu, en verðið úti á landi sem og á höfuðborgarsvæðinu hefur hækkað upp á síðkastið. Eins mun hækkun liðarins „viðhald og viðgerðir“ (u.þ.b. vísitala byggingarkostnaðar í maí) hafa áhrif á liðinn í heild sinni. Greiningardeild Arion banka telur að flugfargjöld hækki í maí en þau lækkuðu lítillega í síðasta mánuði. „Að okkar mati er útlit fyrir að ársverðbólgan verði áfram há á næstu mánuðum. Tímabundið munu þó útsöluáhrif í júlí lækka árverðbólguna all hressilega (niður í 5,1%), sem verður ágætis nýbreytni. Hins vegar munu áhrifin eins og venja er ganga til baka á mánuðunum sem þar fylgja eftir,“ segir ennfremur í verðbólguspá greiningardeildar Arion banka.//////Allir sjá sem vilja !!að þetta gengur einfaldlega ekki ,upp hjá skuldurum þessa lands,þeir einfaldlega fara allir eða flestir á hausinn,ef ekkert verður gert fer það svo,ekki spurning,það verður að taka þetta i gegn algjörlega,ekki bara kák,það ber að taka vetrðtrygginguna allavega tímabundið alveg af.ekkert annað getur bjargað málum frá stór hruni aftur!!!! Eða er það meiningin að við förum öll svoleiðiðis???/Halli gamli

mbl.is Spá 5,9% verðbólgu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 1045710

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband