Metanbílaeigendur í hremmingum/Þessu ber að breyta og gera allt til þessa!!!

Metanbílaeigendur í hremmingum Innlent | mbl.is | 15.5.2012 | 17:17 Maður sem lét breyta bíl sínum Í metanbíl segir að hann hefði tæplega gert það hefði hann vitað í hvaða hremmingum hann ætti eftir að lenda við að fá metan. Forstjóri N1 segir að sú staðreynd að fjöldi fólks hafi valið sér orkugjafa sem 
Metanstöðin við Ártúnshöfða í Reykjavík.
takmarkað framboð er af sé ekki áhætta sem hvíli á herðum N1. Gunnar Á. Bjarnason lét breyta bíl sínum um síðustu áramót og kostaði það 900.000 krónur. Hann segist ekki hafa verið upplýstur um hve metan er af skornum skammti þegar hann lét gera þá breytingu. Gunnar sendi bréf til N1 með afriti til fjölmiðla þar sem hann kvartar undan takmörkuðu framboði á metani og segir aðra metanbílaeigendur sem hann hefur rætt við á dælunni hafa sömu sögu að segja. Sorp baggað og breytt í metangas Mbl.is/Árni Sæberg Margir þurfa frá að hverfa Gunnar segir að iðulega séu langar biðraðir við metan-dælurnar á stöð N1 í Ártúnsbrekku. Ekki nóg með að dælur séu fáar heldur sé þrýstingurinn í kerfinu svo lélegur að bílar fái oft ekki nema hálfa fyllingu og afgreiðslutíminn sé mjög langur. Þetta komi sérstaklega illa við eigendur nýrra tvinnbíla sem hafi mun minni tanka en breyttir bílar. Að sögn Gunnars er ástandið sérstaklega slæmt á föstudögum og öðrum annatímum, þegar margir þurfi að hverfa á braut án fyllingar. „Það er mikil synd að svona ræfilslega sé staðið að þjóðþrifamáli eins og metanvæðingu. Og einkennilegt að hugsa til þess að hið opinbera sé að byggja upp kúnnabasa hjá ykkur með því að niðurgreiða opinber gjöld af metanbílum og breytingum þegar ekki er til staðar afgreiðslugeta á eldsneytinu,“ segir Gunnar í bréfi sínu. Eftirspurn umfram framleiðslu Afgreiðslustöð N1 í Ártúnsbrekku opnaði árið 2008 og kostaði þá yfir 100 milljónir króna í byggingu. „Við höfum einir viljað fjárfesta í búnaði til að selja þetta gas, aðrir hafa ekki séð í því viðskiptatækifæri vegna kostnaðar og takmarkaðs framboðs,“ segir Hermann Guðmundsson, forstjóri N1, í svari við gagnrýni Gunnars. Ráðist var í fjárfestingunni á Bíldshöfða vegna áætlana um stóraukið magn í sölu á metangasi. Síðan þá hefur aukningin að sögn Hermanns orðið margfalt meiri en Metan ehf, Sorpa og N1 spáðu um í sínum módelum. „[Nú] er svo komið að núverandi framleiðsla á metangasi mun tæpast anna eftirspurn að 12 mánuðum liðnum haldi þessi þróun áfram,“ segir Hermann. N1 hefur á undanförnum mánuðum fjárfest í hylkjum og öflugri dælu fyrir 50 milljónir til að auka birgðarými og afköst. Einnig liggur fyrir beiðni frá N1 hjá Reykjavíkurborg um að gefa leyfi fyrir nýrri dælu. Hermann bendir hinsvegar á að takmörk séu fyrir getu þess metankerfis sem nú er rekið. Dreifing metans dýr Í lok mars var á Alþingi lögð fyrir þingsályktunartillaga um niðurfellingu gjalda á vistvænt eldsneyti sem framleitt er innanlands. Þar kemur fram að dreifing metans sé dýr og eigi það bæði við um flutning frá framleiðslustað á sölustað og dælubúnað. „Dreifing með gasleiðslum virðist þó vera hagkvæmasti kosturinn en fjárfesting í upphafi er mikil,“ segir í tillögunni, sem Magnús Orri Schram þingmaður Samfylkingar mælti fyrir. Í tillögunni segir að mikilvægt sé að styðja við uppbyggingu á dreifikerfi fyrir metan, en að taka verði tillit til takmarkana sem eru á framleiðslu metans. Í dag er metan fyrst og fremst framleitt úr sorphaugunum við Álfsnes í samvinnu Sorpu og N1 undir nafni Metan hf. Á heimasíðu Metan hf kemur fram að framleiðslugeta á Álfsnesi verði að líkindum fullnýtt í árslok 2012.//////Þetta er alvöru má og bera að taka alvarlega mjög,það skipti ekki máli,þó sagt sé að stutt sé í Rafmangsbíla ,það gerist ekki strax en mun gerast,en ég tala af reynslu á einn svona bíl nýjan Jeppa frá Benna og er með 40 r.m. magna eða vel fyrir komið,en hefi ekki sömu sögu að segja sem þessi maður sem segir þarna frá keyri kannski eins mikið,en hefi aðein einu sinn lent svona í þessu,var að fregna að Akureyringar ættla að vara að vinna metan og það til í mars á næsta ári,það er strax mikið bót svo vantar bara á Austfjörðum ,það er nóg af sorði til að vinna þetta,það bara kostar en er innlent!!!!Halli gamli

mbl.is Metanbílaeigendur í hremmingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anepo

En af hverju í fjáranum gáðu maðurinn ekki að því hversu margar stöðvar væru til?

Þetta er svona eins og að hafa stórskemdann bíl og láta gera við hann án þess að nokkurn tímann spyrja hvað viðgerðin gæti kostað.

Anepo, 15.5.2012 kl. 22:01

2 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Það gerum við flest og trúum að þetta muni skána,innlent og ódyrt einnig ef vel er að farið en það ber að styrkja þetta,það sparar mikn gjaldeyrir!!!

Haraldur Haraldsson, 15.5.2012 kl. 22:12

3 identicon

"innlent og ódyrt einnig ef vel er að farið en það ber að styrkja þetta,það sparar mikn gjaldeyrir"

Því miður er þetta ekki svona einfalt. Innlent vissulega, ódýrt vegna þess að engin gjöld eru greidd. En gjaldfrjálsa innlenda metanið er selt dýrara en innkaupsverð á bensíni. Þegar fjölgar og bensínbílum fækkar þarf ríkið að fá sínar tekjur og þá verður þetta ekki ódýrt.

Sparar innkaup á bensíni en tólin og tækin eru öll innflutt og ennþá hefur þetta kostað meiri gjaldeyri en ef allir metan bílarnir væru á bensíni nokkur ár í viðbót. Og með stækkun metan kerfisins geta liðið áratugir áður en einhver gjaldeyrir sparast. Erlendur kostnaður við fullnægjandi dreyfikerfi fyrir það takmarkaða magn sem við getum framleitt gerir kostnað per bíl mjög háan.

sigkja (IP-tala skráð) 15.5.2012 kl. 23:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband