Heilbrigðisþjónustan í þriðja sæti//Eins gott að halda því,en þá verður þessi ríkisstjórn að fara frá !!!

Heilbrigðisþjónustan í þriðja sæti Innlent | mbl.is | 15.5.2012 | 19:54 Heilbrigðisþjónusta á Íslandi er sú þriðja besta í Evrópu. Þetta er niðurstaða Euro Health Consumer Index árið 2012 sem kynnt var á Evrópuþinginu í Brussel í dag. Náði úttektin til 34 landa. Íslenskir sjúklingar hafa mikil réttindi, eru vel upplýstir, biðtími eftir þjónustu er stuttur í samanburði við aðrar Norðurlandaþjóðir og árangur 
Mynd 578886
meðferðar er með því besta sem gerist í Evrópu, segir í fréttatilkynningu.
Vísitala notenda heilbrigðisþjónustu, svo kölluð EHCI-vísitala (e. Euro Health Consumer Index), er orðin staðlaður mælikvarði á heilbrigðisþjónustu í Evrópu og hefur verið gefin út af fyrirtækinu Health Consumer Powerhouse í Svíþjóð frá árinu 2005. Lagt er mat á 42 þætti heilbrigðisþjónustu sem flokkaðir eru í fimm eftirtalin svið sem þykja hafa mesta þýðingu fyrir notendurna: Réttindi sjúklinga og upplýsingar til þeirra, Aðgengi að (biðtími eftir) meðferð, Árangur meðferðar, Umfang og útbreiðsla þjónustu Lyf. Ísland hafnaði í þriðja sæti á eftir Hollandi og Danmörku í úttektinni 2012 og heldur því sæti sínu frá síðustu könnun árið 2009.
Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra segir ánægjulegt að Íslandi takist að halda stöðu sinni í efstu sætum þessa lista, þrátt fyrir erfiða aðlögun heilbrigðiskerfisins að lægri fjárveitingum: „Við getum verið stolt af heilbrigðiskerfinu okkar og það er ástæða til að þakka heilbrigðisstarfsmönnum fyrir frábær störf og þrautseigju, oft við erfiðar aðstæður.
Við ætlum að halda okkar stöðu meðal þeirra landa sem bjóða upp á framúrskarandi heilbrigðisþjónustu. Við getum alltaf gert betur, sérstaklega þegar við þekkjum veikleikana og vitum hvað helst þarf að bæta,“ segir Guðbjartur í tilkynningu.
Í tilkynningu frá Health Consumer Powerhouse um niðurstöðurnar segir meðal annars að EHCI vísitalan sýni stöðugar framfarir í heilbrigðisþjónustu í Evrópu með bættum árangri meðferðar og almennum aðstæðum. Í ljósi þessa virðist sem neikvæð áhrif kreppunnar á heilbrigðisþjónustu hafi verið ofmetin. Engu að síður beini vísitalan sjónum að þremur þáttum sem gefa verði sérstakan gaum í tengslum við erfitt efnahagsástand. Er þar nefnt að tilhneiging sé til lengri biðtíma eftir kjöraðgerðum (kostnaðarsömum aðgerðum) í þeim ríkjum sem verst hafi orðið úti í kreppunni. Eins verði vart tilhneigingar til aukinnar kostnaðarþátttöku sjúklinga í heilbrigðisþjónustu og að aðgengi að nýjum lyfjum standi í stað eða hafi jafnvel minnkað.///////Guðbjartur getur bara gumað yfir niðurskurði alstaðar og ekkert annað,auðvitað þerf aðhalt eftir þetta hrun en ekki svo að allt fari á annan endann og niðurskurður varðar líf og dauða sem það gerir!!!!Þessi ríkisstjórn getur gumað eða hitt þá heldur,ég er viss um að ef fólkið allt sem hefur orðið að þola þennan niðurskurð skiptir þúsundum ef ekki tugum þúsunda,þessar tölur um 3 sætið: gæti endað í 131 sæti eins og landsliðið ef fer sem horfir/Halli gamli

mbl.is Heilbrigðisþjónustan í þriðja sæti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 1045710

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband