Fyrsta tap Frakka gegn Spáni?/Það er enganvegin víst als ekki!!!

Fyrsta tap Frakka gegn Spáni? Íþróttir | Morgunblaðið | 23.6.2012 | 11:14 Það er ekki ólíklegt að stórleikur Spánar og Frakklands í 8-liða úrslitum EM í kvöld fari í sögubækurnar. Það er nefnilega svo að Spánverjar hafa aldrei unnið Frakka á stórmóti. Í þau fjögur skipti sem þjóðirnar hafa mæst hafa Frakkar þrisvar unnið og einu sinni varð jafntefli. Á hinn bóginn hafa Spánverjar ekki verið slegnir út á stórmóti síðan árið 2006, og raunar aðeins tapað fyrir Sviss á stórmóti síðan þá. Eitthvað verður undan að láta í kvöld. Það var reyndar einmitt Frakkland sem sló Spán síðast út á stórmóti. Þá skoruðu Franck Ribery, Patrick Vieira og Zinedine nokkur Zidane mörkin fyrir Frakka eftir að David Villa kom Spáni yfir. Þá ríkti eining í franska liðinu og ekki skorti leiðtogana, en sú staða er ekki uppi núna. Fjöldi hæfileikaríkra leikmanna er í hópnum en það vantar fyrirliðatýpuna sem allir líta upp til. Kannski þess vegna berast fréttir af mikilli sundrung í franska hópnum eftir tapið gegn Svíum á þriðjudag. Fótboltafíklar fá nóg fyrir sinn snúð um helgina því á sunnudagskvöld kl. 18:45 mætast England og Ítalía. England hefur enn ekki tapað í fimm leikjum undir stjórn Roys Hodgsons sem hefur skapað góða stemningu í enska hópnum, skipað sínum mönnum að syngja þjóðsönginn fyrir leiki og blásið þeim baráttuanda í brjóst. Englendingar hafa æft vítin vel í aðdraganda leiksins enda ekki ólíklegt að úrslitin ráðist í vítaspyrnukeppni, en slíkt hefur ekki hentað enskum í gegnum tíðina. Sagan er hliðholl Ítölum sem hafa aðeins tapað einu sinni fyrir Englandi síðustu 30 ár, í níu leikjum alls. sindris@mbl.is///////Auðvitða spá menn í þessa leiki og það er svo að flestir spá  Spáverjum sigri ,enég geri það' ekki ,þeir geta alveg gert jafntefli og jafnvel unnið!!!svo með England og Ítali þar er ekki víst hvernig fer ,Ítalir hafa sannað sig sem góðir!!þrátt fyrir þessi leiðindi heima fyrir,svo spila þeir mjög skemmtilega knattspyrnu og Bretarnir geta það einnig,en stundum als ekki þvi miður,Þetta tal um Þyska stálið er ekki sú knattspyrna sem ég dái als ekki,þunga og leiðinlega að mínu mati,en það sigrar oft en ekki fyrir augað,Vonast bara eftir skemmtilegum leikjum/Halli gamli

mbl.is Fyrsta tap Frakka gegn Spáni?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 1045652

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband