Fundað áfram í læknadeilunni í dag/Nei það er ekki talað þarna um lífið og dauðan???

Fundað áfram í læknadeilunni í dag InFundarhöld stóðu yfir hjá ríkissáttasemjara í tíu klukkustundir í gær.nlent | mbl.is | 6.1.2015 | 12:36 Fundarhöld stóðu yfir hjá ríkissáttasemjara í tíu klukkustundir í gær.

Fundað verður í kjaradeilu lækna og ríkisins klukkan 13 í dag í húsakynnum ríkissáttasemjara.

Síðasta fundi var slitið á tólfta tímanum í gær, tíu klukkustundum eftir að hann hófst.

Þar sem samningar hafa enn ekki náðst standa verkfallsaðgerðir áfram yfir í dag.

„Þetta hef­ur gengið upp og ofan, get­ur maður sagt.

Það eru ákveðin atriði sem hafa skýrst og önn­ur á móti orðið flókn­ari,“ sagði Gunn­ar Björns­son, formaður samn­inga­nefnd­ar rík­is­ins, síðdeg­is í gær um gang viðræðna í kjara­deil­unni.

Gunn­ar sagði mörg atriði þegar hafa verið af­greidd en tveir stærstu póst­arn­ir væru eft­ir – launaþátt­ur­inn og vinnu­fyr­ir­komu­lagið.

Sig­ur­veig Pét­urs­dótt­ir, formaður samn­inga­nefnd­ar lækna, tók í sama streng og Gunn­ar og sagði þónokkuð standa út af en unnið væri hörðum hönd­um að því að ná sam­an.

„Það er búið að vinna mikla vinnu en það eru mik­il­væg mál eft­ir,“ sagði Sig­ur­veig. Neyðarmönn­un var á aðgerðasviði og flæðis­sviði Land­spít­al­ans í gær.

Leitað var eft­ir und­anþágum fyr­ir sér­hæft starfs­fólk í sér­stök­um til­vik­um og feng­ust þær.

Í dag standa verk­fallsaðgerðir yfir á eft­ir­far­andi stofn­un­um:

Aðgerðasviði Land­spít­ala Flæðis­sviði Land­spít­ala Sjúkra­trygg­ing­um Íslands Trygg­inga­stofn­un rík-­

is­ins Grein­ing­ar­stöð rík­is­ins Heyrn­ar- og tal­meina­stöð Íslands Vinnu­eft­ir­liti rík­is­ins Lyfja-­

stofn­un Íslands Embætti land­lækn­is Þjón­ustu- og þekk­ing­armiðstöð fyr­ir blinda, sjónskerta og

dauf­blinda ein­stak­linga //////////////////////Að sjálfsögðu vill maður tala um þessa deilu frekar en Lekamálin,sem var bara bomba út af engu!!!En þetta mál er alvarlegt mjög eiginlega það alvarlegasta sem lengi hefur komið uppá,í vinnudeilum,lengi eða bara nokkur tíman,Að skrifa um þetta,er ekki nema von svo alvarlegt er þetta fyrsta Læknaverkfallið á Íslandi,og menn hafa þarna ýmsar skoðanir flestir upphaflega með læknum en núna eftir 5 vikna verkfall, þar sem allt var lokað um tímabil, og er enn að harðna ,og þaul skipulagt, þá fer þetta að vara mikið meiri alvara ,en við bjuggumst við og versnar með degi hverjum,Við tölum um mannvonsku og allt það,og læknaeyðnin en þetta er launabarátta sem í raun við öll gætum staðið í,samanburðurinn samt sá að þeir vilja mikið hærri laun,en almennt gerist á Íslandi bera sig saman við yfirborgaða lækna Erlendis,þetta gætum við einnig gert,en þetta er aldey hægt að hafa svo öllum líki als ekki,þá er að fara bil beggja og við það er unnið,þeir geta fengið nóga vinnu erlendis,og þeir um það,geta bara sagt upp og hætt,það er einnig hótunin,ef við setjum þetta í gerðadóm sem það ætti löngu að vera komið þangað,og reyna að hafa þar skinsamlegar aðferðir,þessir menn eiga skilið góð laun,jafnvel í hæðstu kanti,en þeir komast um það með  20%hækkun og bættri aðstöðu og breyttum vöktum,svo þegar búið er að jafna þá sem hafa dregist afturúr þá bara krónutöluhækkun,ekki %///En við bara vonum það besta allra vegna þjóðarhagur bíður þessa/Halli gamli  

 


mbl.is Fundað áfram í læknadeilunni í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Sept. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.9.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 1046430

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband