Ríkisstjórnin gerir allt öfugt/Ósamkomulag gerir það alltaf !!!!!

Innlent | mbl | 5.10.2009 | 20:59
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson í ræðustól Alþingis. Ríkisstjórnin gerir nánast allt öfugt við það sem hún ætti að gera, sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins á Alþingi í kvöld. Sagði hann að rökleysa væri í stefnunni, sem gengi út á að til þess að vera þjóð á meðal þjóða, þyrftu Íslendingar að láta erlent vald

Sagði hann að ef litið væri á íslenska hagkerfið eins og fyrirtæki gengi það bara nokkuð vel. Tekjur væru meiri en útgjöld. Gallinn væri hins vegar skuldirnar og vextirnir af þeim. Ríkisstjórnin tæki hins vegar á þeim skuldavanda með því að reyna að auka skuldirnar enn frekar. Vísaði hann þar til Icesave samninganna og lántökunnar frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.

Hann spurði til hvers lánin frá AGS væru eiginlega. ,,Þau eru til þess að styrkja gengi krónunnar með illskiljanlegum hætti." Ekki standi til að nota lánsféð, bara eiga það og borga af því vexti. Ýmsum renni hins vegar í grun að tilgangurinn sé sá að ríkið muni kaupa upp eigin gjaldmiðil. Á því hagnist helst erlendir fjárfestar sem eigi eignir í krónum og vilji selja þær eignir á sem hagstæðustu gengi.

Sagði hann að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefði aldrei náð yfirlýstum markmiðum sínum í þeim löndum sem hann hefur aðstoðað. Ríkisstjórnin sé að berjast fyrir því að fá að taka lán, til þess að geta borgað skuld sem Íslendingar skuldi alls ekki og svo eigi að taka enn meiri lán til þess að halda uppi gengi gjaldmiðilsins, sem ekki sé hægt. vaða yfir sig í Icesave málinu

Sigmundur Davíð gagnrýndi einnig harðlega hátt vaxtastig Seðlabankans og niðurskurðinn í fjárlagafrumvarpinu, sem hann sagði eyðileggjandi og án framtíðarsýnar. Fyrirhugaðar skattahækkanir sagði hann það vanhugsaðasta af því öllu.

Þá gagnrýndi hann stjórnina fyrir að bregðast við gagnrýni með persónulegum árásum á fólk og gagnrýndi hann fréttaflutning Ríkisútvarpsins í kvöld, þar sem sagt var frá málum tengdum Ögmundi Jónassyni, fyrrverandi heilbrigðisráðherra og Icesave samningnum. ,,Svona vinnur þessi stjórn. Spuni og ofbeldi í stað rökréttrar umræðu," sagði Sigmundur Davíð. Sagði hann kaldhæðnislegt að vinstristjórnin væri búin að leiða Íslendinga undir frjálshyggju AGS og væri að hjálpa ESB við að horfast ekki í augu við gallana á regluverki þess.

Sagði hann mikilvægt að Íslendingar læri af reynslunni í þetta skiptið, enda geti þeir að öðrum kosti ekki verið sáttir við sjálfa sig þegar uppi verður staðið///Þetta þarf ekki að endurtaka en verum samt að rína í þetta til að geta séð að þetta er rétt sem hann segir að mestu,ekki mikið, við þetta að bæta ,en ræðan var góð og mikið til i henni,þetta á eftir að verða millum tanna í fólki næstu daga og vikur,en hvað er til ráða,hverjir geta tekið við eru það nokkrir sem geta komið sér saman um þetta ,að gera okkur aftur sálafbjarga að  fullu,skoðum málin næstu daga/Halli gamli


mbl.is Ríkisstjórnin gerir allt öfugt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 1045654

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband