23.2.2013 | 18:42
Ég vil þakka fyrir mig/Mikil eftirsjá af Ólöfu Nordal,og henni þökkuð fræbær störf,en hún ekki hætt,er með okkur hinum,eða fjöldanum!!!
Ég vil þakka fyrir mig Innlent | mbl.is | 23.2.2013 | 13:49 Ég er hingað komin til að kveðja. Ég vil þakka fyrir mig, sagði Ólöf Nordal, fráfarandi varaformaður Sjálfstæðisflokksins, í kveðjuræðu á landsfundi Sjálfstæðisflokksins í dag.
Ég ætlaði að vera með ykkur svo miklu lengur, sagði Ólöf. En engin á að halda ... að hann hafi nokkra stjórn á elfur lífsins... Lífið sjálft tekur völdin... Ég held að það sé okkur öllum hollt að líta aldrei á neitt sem gefið, sagði Ólöf. Flokkurinn stendur á tímamótum... Öllu skiptir að lausnir Sjálfstæðisflokksins verði ráðandi vi
ð stjórn landsins á komandi árum, sagði Ólöf og vék að þeim tækifærum sem væru til að styrkja hagkerfið, m.a. með því að lækka skatta á heimili og fyrirtæki.
Brjótast þurfi út úr þeim haftabúskap sem Ísland hafi búið við á síðustu árum. Mikilvægasta aðgerðin væri að mæta hagsmunum heimilanna.
Hvaða aðgerð getur verið almennari en sú að byggja undir hagvöxt? spurði Ólöf og vék að stjórnmálamenningu síðustu ára.
Við verðum að huga vel að opinberri umræðu. Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur tók við undir trumbuslætti og mótmælaöldu, sagði Ólöf og rifjaði upp að vorið 2009 hefði Jóhanna lofað samstöðu, þvert á sundrungu síðustu ára.
Þá sagði hún landsdómsmálið ríkisstjórninni til ævivarandi skammar. Neikvæð áhrif kommentakerfa Ólöf gerði bloggmenninguna að umtalsefni og hvernig nær látlaust væri ráðist á suma einstaklinga með ljótu orðfæri.
Við eigum að taka til varna og segja hingað og ekki lengra. Sagði Ólöf svo að tilteknir fjölmiðlar hefðu veist að Bjarna Benediktssyni, formanni Sjálfstæðisflokksins á ómaklegan hátt. Sjálfstæðisflokkurinn yrði að berjast gegn persónulegum árásum, dylgjum og rógi.
Sagði hún kommentakerfi bloggsíðna hafa áhrif á það hvernig opinber umræða þróast. Þessi ómenning geti leitt til þess að sumt fólk veigri sér við að taka þátt í opinberri umræðu
. Það má ekki verða þannig að fólk finnist ekki borga sig að taka þátt í henni. Ólöf vitnaði í Ólaf Thors: Við minnumst þess að með hverjum sigri í sjálfstæðisbaráttuni hefur þjóðinni vaxið þrek og djörfung. Ólöf sagði svo Sjálfstæðisflokkinn standa saman í þágu allra einstaklinga og heimila.
Andstæðingar flokksins byggi hins vegar allt á tortryggni og vantrausti. Við höfnum sundurlyndisfjandandum, sagði Ólöf. Berjast fyrir réttlátu samfélagi Hún vék svo að því sem sameini Sjálfstæðisflokkinn.
Við erum ekki endilega sammála um allt og við þurfum ekki að vera en við deilum grundvallarlífsskoðunum.
Við berjumst fyrir réttlátu samfélagi og við vitum að framundan er betri tíð með blóm í haga. Ólöf þakkaði síðan fyrir þann stuðning sem henni hefði verið sýndur. Hún óskaði svo forystu flokksins velfarnaðar og alls hins besta
. Ég færi mig yfir í bakvarðasveitina. Ég þakka fyrir mig./////////////svo mörg voru hennar orð og þau góð,en það er eftirsjá af henni blessaðri!!en það sem hún segir þarna er okkur til umhugsunar margt og við skulum íhuga að skoða það vel!!!en við sjálfstæðismenn erum henni þakklátir fyrir hennar störf,og kunnum að meta þig vel!!!en það kemur maður á mans stað,og það verður einnig góð manneskja,og við bindum við hana miklar vonir og vonumst til að allir gangi sáttir frá borði að lokknum þessum landsfundi,sérstaklega ef þetta stóra mál skuldavandi heimilanna verði leist með láði en ekki svikadæmi!!!!/Halli gamli
![]() |
Ég vil þakka fyrir mig |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.2.2013 | 18:21
Wenger: Kærkomið eftir krísu//Já þetta vonandi heldur áfram,enda er þetta í liðinu,vantar að springa út!!!!
Wenger: Kærkomið eftir krísu Íþróttir | mbl.is | 23.2.2013 | 17:55 Arsene Wenger knattspyrnustjóri Arsenal segir leikmenn sína hafa verið stressaða í leiknum gegn Aston Villa í dag eftir vonbrigði síðustu vikna, en sigurinn hjálpi liðinu að jafna sig.
Hann hrósaði hetjunni Santi Cazorla sem skoraði bæði mörkin í 2:1 sigri.
Arsenal féll um síðustu helgi úr leik fyrir B-deildarliði Blackburn í enska bikarnum, eftir að hafa fyrr í vetur fallið úr leik í deildabikarnum gegn D-deildarliði Bradford, og tapaði svo 3:1 á heimavelli fyrir Bayern München í Meistaradeildinni í vikunni.
Við höfðum orðið fyrir miklum vonbrigðum í tvígang og liðið var svolítið stressað en einbeitt frá byrjun leiks. Þetta var verðskuldaður sigur og hann ætti að gera andrúmsloftið þægilegra. Þetta hefur verið svolítið erfitt síðustu daga
. Það var mikilvægt að ná þessum sigri í dag, sagði Wenger sem var svo spurður um framlag Spánverjans Santi Cazorla.
Bestu leikmennirnir gera sitt þegar á þarf að halda og Santi Cazorla gerði það í dag.
Þegar maður er að koma úr svona krísu eins og við höfum verið í þá gæti maður sætt sig við jafntefli en maður þakkar fyrir að ná sigri, sagði Wenger.////////////////Loksins kom liðið aðeins til baka og það vonandi til að vera í framhaldinu!!!eða það vonum við sem fylgjum þess liði í súrt og sætt!!!en það er í þessu liði margt gott og það þarf að ná sér á strik og komast í 4 sætið allavega og svo kaupa tvo til þrjá góða menn og vinna deildina næst,áfram Arsenal!!!!/Halli gamli
![]() |
Wenger: Kærkomið eftir krísu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fólk öðlist trú á framtíðina Innlent | mbl.is | 23.2.2013 | 14:57 Kæru landsfundarfulltrúar. Það er ríkisstjórn í landinu. Það er kannski ekki alltaf augljóst en hún er samt þarna enn, sagði Hanna Birna Kristjánsdóttir, frambjóðandi til varaformanns Sjálfstæðisflokksins, á landsfundi flokksins fyrir stundu.
Hanna Birna dró saman viðhorf ríkisstjórnarinnar til atvinnulífsins svona: Ef það hreyfist - er það skattlagt. Ef það heldur áfram að hreyfast - eru sett lög á það. Og ef það stoppar - er það sett á opinbera styrki.
Hanna Birna býður sig fram til varaformanns Sjálfstæðisflokksins en hún ítrekaði í ræðu sinni í dag að hún stefni ekki á formannssætið í flokknum.
Frá landsfundi Sjálfstæðisflokksins. mbl.is/Árni Sæberg Sagði hún að stundum hefði verið haft í flimtingum að forystumenn ríkisstjórnarinnar skyldu ekki ensku.
Enn alvarlegra væri að þær skyldu ekki íslensku og vísaði þar til sambandsleysis stjórnvalda við þjóðina. Þessar kosningar snúast um það eitt að fólkið í þessu landi öðlist trú á framtíðina, sagði Hanna Birna. Skattahækkanir hefðu gengið það nærri fólkinu í landinu að það sjái vart vonarglætu.
Skuldastaða heimilanna væri ekki viðunandi, margar fjölskyldur gætu ekki meira.
Alvöru lýðræðisflokkur Sjálfstæðisflokkurinn er alvöru lýðræðisflokkur. 20.000 einstaklingar um land allt tóku þátt í að stilla upp framboðslistum fyrir næstu alþingiskosningar, sagði Hanna Birna og benti á að það væru rúmlega helmingi fleiri en allir þeir sem tóku þátt í að stilla upp listum fyrir alla aðra stjórnmálaflokka landsins.
Þá minnti hún á að Steingrímur J. Sigfússon hefði fengið innan við 200 atkvæði í prófkjöri VG í 40.000 manna kjördæmi, þ.e. Norðausturkjördæmi, og hvernig Guðmundur Steingrímsson lét handvelja sig sem formann flokksins af kunningjum og vinum.
Sagðist Hanna Birna ekki vita hvort stuðninsmenn Guðmundar hefðu mætt í Star Wars-búningum á fundinn hjá Bjartri framtíð, en í borgarstjórn hljóma þeir að minnsta kosti oft eins og þeir séu af allt annarri plánetu, sagði Hanna Birna.
Við erum öll í framboði. Við sem eigum sameiginlega drauma fyrir framtíð Íslands erum öll frambjóðendur flokksins. Við erum boðberar hugsjóna og fulltrúar frelsisins, sagði Hanna Birna.
Árið 2013 verður ár nýs upphafs fyrir Ísland. Við sjálf getum haft áhrif til góðs Ræða Hanna Birna var á persónulegum nótum.
Hún rifjaði upp þegar hún sat ásamt verðadi eiginmanni sínum í gömlum Fiat og hlustaði á hann segja uppnuminn frá deginum sínum, eftir landsfund Sjálfstæðisflokksins 1991.
Ég hugsaði með mér. Hvað er það eiginlega við þennan landsfund? Skyldi ég einhvern tíma verða svo uppnumin í pólitík að ég geti með svona mikilli gleði og stolti varið fjórum heilum dögum á fundi til að ræða framtíð lands og þjóðar.
Ég skal viðurkenna að á þessum rúnti á litla Fiatnum okkar - þar sem við vorum bæði 22 árum yngri ég með herðapúða og Villi með strípur - þá var ég ekki sannfærð um að svo yrði. Á landsfundi 1996 hafi hún hins vegar sannfærst algjörlega um töfra þessarar samkomu og upplifað stolt, gleði og þakklæti yfir að tilheyra hópi fólks sem léti sig málin varða.
Ég er í stjórnmálum því mig langar að einmitt þessi tilfinning þessi vissa um að við sjálf getum haft áhrif til góðs nái til sem flestra. Spurðu hvað þú getur gert
Hún sagði einnig frá heimsókn sinni til Harvard-háskóla fyrir skömmu þar sem hún hafi tekið hús á Harvard Kennedy School of government. Þar hafi hún veitt athygli spjöldum þar sem stóð spurðu hvað þú getur gert með vísan til frægrar ræðu John F. Kennedy þar sem forsetinn hvatti þegna sína til að spyrja ekki hvað Bandaríkin gætu gert fyrir þá heldur hvað þeir gætu gert fyrir Bandaríkin. Undir þessari lýsingu varð mér hugsað heim.
Heim til Íslands sem þarf svo mikið á því að halda að við öll, hvert fyrir sig og hvert fyrir annað, spyrjum okkur að því hvað við getum gert. Hvað við getum gert fyrir landið okkar, fólkið og framtíðina, sagði Hanna Birna.
Hún sagði verkefnin framundan stærri en svo að þau verði leyst af atvinnustjórnmálamönnum, einum leiðtoga eða ríkisstjórn. Íslendingar þurfi að vera reiðubúnir að spyrja fyrst hvað þeir geti gert áður en lausnanna er leitað hjá stjórnmálamönnum.
Hér í salnum eru fjölmargir einstaklingar sem hafa spurt sig hvað þeir geta sjálfir gert. Einstaklingar sem biðu ekki eftir því að aðrir gengu til verka fyrir þá heldur gerðu það sjálfir, sagði Hanna Birna.
Hún rifjaði upp að hún hafi sjálf verið á framboði gegn Bjarna Benediktssyni á síðasta landsfundi og fengið fínan sstuðning.
Ég margítrekaði á síðasta landsfundi að ég myndi ekki bjóða mig aftur fram til formanns á þessu kjörtímabili, heldur virða ykkar val, kæru félagar, á síðasta landsfundi.
Við það stendur. Ég tók engu að síður ákvörðun um að gefa kost á mér til varaformanns. Það er svar mitt við spurningunni um ,,hvað get ég gert?.//////////////það er svo að Hanna Birna er komin í framtíðarforristu flokksins ekki spurning,þessi ræða frábær og hún verðugur varaformaður okkar,enda ekki annar þar í framboði og við mikið ánægð ef þau ná vel saman hún Barni og Kristján sem ég held að nái kjöri sem annar varaformaður,ekki það að ég geri lítið úr mótframboði bæjarstjóra Hveragerðis als ekki,hún kemur inn seinna blessuð og er skellegg mjög.en áfram með ræðuna hennar Hönnu Birnu hún sannar að þarna er komin manneskja sem við öll viljum í forustusveitina/Halli gamli
![]() |
Fólk öðlist trú á framtíðina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.2.2013 | 16:35
Skoraði á fólk að kjósa Hönnu Birnu//þetta er hans skoðun en það verður kosið,og það er svarið!!
Skoraði á fólk að kjósa Hönnu Birnu Innlent | mbl.is | 23.2.2013 | 15:09 Sjálfstæðisflokkurinn á enn eftir að gera upp efnahagshrunið, að mati Halldórs Gunnarssonar í Holti sem býður sig fram til formanns flokksins.
Hann skoraði í dag á landsfundarfulltrúa að kjósa Hönnu Birnu sem formann, þótt hún hafi ekki boðið sig fram sem slíkur.
Eftir ræðu Hönnu Birnu [Kristjánsdóttur] skora ég á landsfundarfulltrúa, án þess að hún hafi boðið sig fram, að kjósa hana, sagði Halldór í lok ræðu sinnar.
En skömmu áður hafði Hanna Birna lýst því yfir að hún byði sig fram í sæti varaformanns. Halldór rifjaði upp að þegar einkabankarnir þrír hrundu haustið 2008 hefðu 5% þjóðarinnar átt 95% fjármagnsins í bönkunum.
Ríkið hefði tryggt innistæður á sama tíma og ákveðið var að heimilin skyldu taka á sig stökkbreytt lán. Þau lán hefðu hækkað um 400-450 milljarða króna frá efnahagshruninu.
Frá landsfundi Sjálfstæðisflokksins. mbl.is/Árni Sæberg Halldór beindi síðan orðum sínum til þeirra þingmanna Sjálfstæðisflokksins sem studdu Icesave-III samninginn.
Sá hefði kostað 90 milljarða. Það væri eins og fyrsta greiðsla til heimilanna sem töpuðu öllu, sagði Halldór. Halldór tók síðan undir með formanni Sjálfstæðisflokksins að nauðsynlegt væri að taka á vogunarsjóðunum.////////////////Margt var gott sem sérann sagði og það er ekkert ljótt að segja sína meiningu,en um skuldir heimilanna og vanda lántakanda þarna er hann harður og mikið til í því að gera þar betur!!! en að tefla þarna þeim upp á móti hver öðru Bjarna og skíta hann út um leið og svo Hönnu Birnu er ekki flokknum til framdráttar ,þar andsæðingum til góða,en semsagt þetta er hans álit og það fer fram kosning og hún sker um þetta alt Formann Varaformann og annan Varaformann og við stöndum við þá aðgerð,en eins og þarna kemur fram eru skoðanir skiptar og það bara gott,ef ekki skemmir fyrir flokknum/Halli gamli
![]() |
Skoraði á fólk að kjósa Hönnu Birnu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sér ekki eftir neinu Innlent | mbl | 22.2.2013 | 23:57 Algerlega hiklaust.
Ég margtók það fram að ég sæi ekki eftir einu einasta augnabliki og allra síst okkar ákvörðun um að fara inn í ríkisstjórn og leggja okkar af mörkum, sagði Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, aðspurður hvort hann myndi gera það sama á kjörtímabilinu aftur ef hann gæti
. Steingrímur lætur af formennsku í VG á morgun, laugardag, en hann hefur verið formaður flokksins frá stofnun 1999. Skömmu eftir að hann lauk kveðjuræðu sinni á landsfundi VG í kvöld gaf hann kost á viðtali.
Var auðséð að hann var djúpt snortinn eftir kveðjustundina. Bolir með myndum af Steingrími og Katríni Jakobsdóttur voru til sölu á landsfundinum í gær. Voru þeir með sniði þekktrar myndar af Che Guevara, byltingarleiðtoganum fræga.
Árni Sæberg Skynjaði samkenndina - Hvernig er þér innanbrjósts eftir að hafa haldið kveðjuræðu á landsfundi? Mér líður bara ákaflega vel. Þetta er kannski auðvitað ákveðinn léttir svona en ég er aðallega ánægður með stemninguna og samkenndina sem ég þóttist skynja úr salnum.
Ég held að þetta sé að ganga bara mjög vel hjá okkur öllum til samans, mér og flokknum. - Áttu eftir að sakna þess að vera formaður? Nei, ég held ekki, sérstaklega vegna þess að ég ætla að halda áfram og vera með og ég er fullur tilhlökkunar að takast á við það að leggja mitt af mörkum í aðeins nýju samhengi.
Ég skynja ekki annað en góðan hug og anda í kringum það. Auðvitað var þetta ákveðin saknaðarstund hjá sumum og maður skynjaði það líka.
En ég held að þetta sé að gera sig mjög vel. Fráfarandi og verðandi formenn VG á landsfundi í kvöld. mbl.is/Árni Sæberg Stefnumálin sem marka sérstöðu VG - Hvernig meturðu sóknarfæri ykkar nú þegar eru rúmlega 60 dagar í kosningar?
Ég met þau alveg bærileg. Ég hef svo sem aldrei haft tiltakanlega þungar áhyggjur af því að við myndum ekki fá, ja segjum þokkalega kosningu innan gæsalappa. Þ.e.a.s., ef maður horfir til okkar málefnalegu sérstöðu og hvar við erum, sem eini handhafi svona róttækrar vinstri stefnu, umhverfisverndar og kvenfrelsis og annarra hluta sem marka okkar sérstöðu og í pólítík.
Ég veit alveg að það er það margt fólk sem vill slíkar áherslur og að við fáum góða kosningu. Síðan hef ég trú á því að við eigum núna mikil sóknarfæri.
Meðal annars með því að við sýndum það hér að við getum endurnýjað okkar forystu og fengið kynslóðaskipti og glæsilega nýja sveit til að leiða okkur.
Með okkur sem höfum meiri reynslu með í hópnum held ég að það sé einhver besta blanda sem er til og ég held að enginn annar íslenskur stjórnmálaflokkur sé eins vel settur og við í þessum efnum, að eiga efnilegt og yngra forystufólk sem er tilbúið til að taka við keflinu, ungt að árum en samt með reynslu.
Þannig að ég er ákaflega bjartsýnn á það að þetta marki upphafið að viðsnúningi og að við verðum í sókn á næstu vikum og fram að kosningum. Framlag VG til stjórnmálaumræðunnar markverðast - Þú ræddir í síðari hluta ræðu þinnar um endurnýjun og að VG væri jafnvel mikilvægasti flokkurinn hvað það varðar?
Ég held því hiklaust fram að við höfum lagt langmest til málefnalegrar endurnýjunar íslenskra stjórnmála núna undanfarinn einn, einn og hálfan áratug. Við höfum komið á dagskrá og komið inn í umræðuna ýmsum hlutum sem að vantaði dálítið að væri tekist á við í íslenskum stjórnmálum.
Við erum auðvitað þar með okkar áherslur og okkar pólitík en það getur enginn borið á móti því að umræða um umhverfismál, að umræða um kvenfrelsi, um baráttu gegn klámi, vændi og mansali og öðru slíku er öðruvísi í dag og Vinstri græn eiga mestan þátt í því
. Það má nefna fleiri málaflokka til. Þannig að áhrif flokka mælast ekki bara í fylgi og þeim mönnum sem þeir fá inn á þing eða í sveitarstjórnir.
Þau mælast líka í því hvort að þeir nái að setja mark sitt verulega á inntak stjórnmála. Það hafa Vinstri græn svo sannarlega gert. Þegar við bætist svo að við höfum auðvitað skipt sköpum varðandi valdahlutföllin í íslenskum stjórnmálum undanfarin fjögur ár er okkar hlutur stór í þessum efnum.
Ég býð hvaða stjórnmálafræðingi sem er upp á rökræður um það við mig. Ég held því fram að enginn einn flokkur hafi haft meiri áhrif á þróun íslenskra stjórnmála síðastliðin 14-15 ár en við Vinstri græn. Öðruvísi ræða en venjulega - Var það tilfinningaþrungið fyrir þig að halda ræðuna og kveðja félagana og heyra svo Maístjörnuna í lokin?
Já. Maður varð auðvitað dálítið snortinn af þessari stund og það er margt sem flýgur í gegnum hugann. Þetta var allt öðruvísi ræða en ég er vanur að halda sem formaður, eðlilega, ég geymdi auðvitað margt af því sem verður í höndum nýs formanns að tala um og leggja meira línurnar og tala um stjórnmál líðandi stundar og það sem er fram undan í kosningabaráttunni.
Ég fór svona yfir sviðið, fór yfir hlutina og söguna. Þegar maður var að minnast góðra og genginna félaga og annarra slíkra hluta að þá eru heitar tilfinningar í því.
Ég er óskaplega ánægður og þakklátur vini mínum Høgna Hoydal að mæta. Ég vissi að hann þurfti að leggja dálítið á sig til að koma. Við höfum fylgst þétt að í gegnum líklega ein 20 ár eða meira í pólitíkinni og ég hef fengið góðar kveðjur, til dæmis frá Kristinu Halvorsen, mennta- og menningarmálaráðherra Noregs. Við höfum líka verið lengi saman í þessu.
Þannig að maður finnur fyrir því að maður á inni og það er hugsað til manns víða að, meira segja utanlands frá. Sér ekki eftir neinu einasta augnabliki Myndirðu gera það sama á kjörtímabilinu ef þú gætir byrjað það upp á nýtt með reynslu síðustu fjögurra ára í farteskinu? Algerlega hiklaust.
Ég margtók það fram að ég sæi ekki eftir neinu einasta augnabliki og allra síst okkar ákvörðun um að fara inn í ríkisstjórn og leggja okkar af mörkum.
Ég á ætíð eftir að verða stoltur af því. Og ég er sannfærður um að stjórnmálasagan mun skrifast þannig að þetta voru mikilvægir og afdrifaríkir tímar fyrir landið og það sem við lögðum af mörkum skipti sköpum.
Sagan er náttúrulega þegar orðin þannig svo að hún verður ekkert umskrifuð úr þessu. Það er ekki hægt að láta fjögurra ára kafla hverfa úr sögu þjóðarinnar.
Þannig að við eigum orðið okkar sess þar í þeirri merku sögu og ég er bjartsýnn á framhaldið.
Þannig að ég gæti eiginlega ekki verið sáttari á þessum dagi, sagði Steingrímur J. Sigfússon, skömmu eftir að hann lauk kveðjuræðu sinni í kvöld./////////////Engum er als varnað ekki einu sinni Steingrími!!! en maður þarf ekki að hæla honum, hann gerir það svo vel sjálfur karlinn,að við því er engu að bæta ,engda við búin að fá flest nóg eða hvað eru ekki fylgi hans og flokksins í algjöru lágamarki um 7% eða svo!!!óvinsælar aðgerðir eru ekki þarna inni sem hann talar um,það eru bara vitlaust gefið og ekkert annað ,"það sem helst hann varast kann varað að koma yfir hann" segir máltækið ,við erum ekki að tala um hann nema pólitíkus ekki sem heimilismann og vin eða hvað það nú heitir,engin að sverta það als ekki!! en þessu ferill í 4 ára er ekki til að guma af það hefur komið inn sem betur fer gott verð fyrir allan okkar útflutning Fiskin og Álið og annað í tæknigeiranum og ferðamennskunni og fl.en forgangröðin er ekki til að að hæla sér af nema síður sé og það er hundurinn grafin að það er allt vitlaust,sem á að vara rétt gefið,við höfum verndað þá smáu og lágt á þá háu eða jafnað tekjurnar segir hann,öfugmæli og ekkert annað Bruðlað men peninga í styrki og flottheita og ferðalög óþörf oft,en er að drepa heilsugæsluna með sparnaði og þrældómi,og engar skuldir greiddar nema í nauðsins,vegna framtakleysis og atvinnuleysis eða er það ekki,við bara sjáum ekkert sem heita framafarir bara afturfarir frá kreppunni!!!svo skal þarna bara hæla sér og kenna Íhaldinu um það eru þau sammála öll þarna á vinstri vængnum!!!enda á það eftir að koma þeim illa í kosningunum/Halli gamli
![]() |
Sér ekki eftir neinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.2.2013 | 17:15
Birtir lágmarkskröfur í öldrunarþjónustu/þar ekki nóg það þarf að fara eftir þeim,og allir eiga þarna kost!!!
Birtir lágmarkskröfur í öldrunarþjónustu Innlent | mbl.is | 22.2.2013 | 16:30 Velferðarráðuneytið hefur gefið út kröfulýsingu fyrir öldrunarþjónustu.
Þar koma fram lágmarkskröfur sem velferðarráðuneytið gerir til þeirra sem annast rekstur hjúkrunar- dvalar- og dagdvalarrýma og til þjónustunnar sem þeir skulu veita.
Kröfulýsing fyrir öldrunarþjónustu var fyrst samþykkt í velferðarráðuneytinu í desember 2011. Hún hefur nú verið uppfærð og er þetta því 2. útgáfa.
Fjallað er um rekstur þjónustunnar og settar fram almennar kröfur sem lúta að honum, svo sem um skipulag, ábyrgðarstöður, gæða- og árangursstjórnun, sjúkraskrár, upplýsingaskyldu og eftirlit.
Jafnframt er þjónusta við einstaklingana skilgreind og lýst almennum kröfum til hennar.
Fjallað er sérstaklega um einstaka þætti þjónustunnar og einnig um þjónustuöryggi og þjónustutíma.
Til viðbótar þeim kröfum sem fram koma í kröfulýsingunni koma faglegar gæðakröfur sem Embætti landlæknis gerir til öldrunarþjónustu.///////////////Þetta er það sem við eldri borgarar og allir sem tengjast okkur vilja og allir verða gamlir,það vita eignilega flestir,en samt finnst manni margir gleyma því!!því miður er það svo að það er allt í kaos þarna með pláss á svona stöðum og fer mjög hægt að laga það,og er eiginlega stopp,en það er einnig með okkur sem viljum vera sem lengst í eigin íbúð þar er ekkert eftirgefið engin afsláttur af neinu!!!!,og þjónusta í lágmarki,og þar þarf að taka á hlutum e ekki illa á að fara,lög og umræður eru góð,en það þarf að fara eftir þeim!!!////Halli gamli
![]() |
Birtir lágmarkskröfur í öldrunarþjónustu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.2.2013 | 16:50
Halldór býður sig fram til formanns/séran vill bara vel,og við styðjum hans viðleitni,og hún verður ábyggilega rædd
Halldór býður sig fram til formanns Innlent | mbl.is | 22.2.2013 | 6:32 Sjálfstæðisflokkurinn verður að horfast í augu við hver vandinn er og gera tillögur á þessum landsfundi um hvernig á að leysa hann, segir Halldór Gunnarsson, sem ákveðið hefur að gefa kost á sér í embætti formanns Sjálfstæðisflokksins.
Halldór hefur áður gefið kost á sér í forystu flokksins þegar hann bauð sig fram til varaformanns fyrir tveimur árum.
Halldór segir ástæðu framboðs síns vera þá baráttu sem hann hafi staðið í frá síðasta landsfundi um að fylgt sé eftir ályktun flokksins um að færa niður höfuðstól verð- og gengistryggðra húsnæðislán
Hann segir þingflokk Sjálfstæðisflokksins hafa brugðist í að fylgja því eftir./////////////////Það er svo að séra Halldór er fylgin sér og,og hefur sterkar skoðanir,en þær margar mjög góðar,en samkvæmt lögum flokksins geta allir sótt um að vera í framboði!!ekkert við það að athuga,en það er svo að þetta er eiginlega gert til að það verði betur tekið eftir því sem sérann hefur fram að færa,og við styðjum það flest ef mögulegt er að gera sem ég sem ekki gat mætt þarna vegna heilsuleysis get ekki tjáð mig um!!þarna en eflaust mjög margir á sama máli og Presturinn og vel það,við skulum vona að það skili árangri og farið verði eftir þessu eins og hægt er,og þar er hægt,en kostar svita og tár sumra//Halli gamli
![]() |
Halldór býður sig fram til formanns |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.2.2013 | 16:01
Vilja endurskipuleggja íbúðalán/feikilega góð ræða Formansins,en við skoðum hana betur!!!
Vilja endurskipuleggja íbúðalán Innlent | mbl | 21.2.2013 | 18:02 Það þarf að örva atvinnulífið, lækka skatta og vinda ofan af flækjustiginu.
Við munum byrja á tryggingagjaldinu og halda svo áfram að greiða fyrir fjárfestingum í atvinnulífinu, og taka til í ríkisfjármálunum hætta skuldasöfnun, sagði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins. í setningarræðu sinni á 41. Landsfundi Sjálfstæðisflokksins sem hófst á sjötta tímanum í dag. Við þurfum aðgerðir til að minnka hagsveiflur og draga úr verðbólgu.
Þannig hefjum við nýtt framfaraskeið, sagði Bjarni og að leiðin væri ekki að leggja sífellt auknar byrðar á það sem vel gangi. Við höfum fjölmörg dæmi um að útgerðarfyrirtæki þurfi að standa skil á hærra veiðigjaldi en sem
nemur heildarhagnaðinum. Alvarleg hugsanavilla hrjáir þá sem reyna að réttlæta slíkt, sagði Bjarni.
Þetta er leið Sjálfstæðisflokksins Við munum skapa íslensku efnahagslífi og atvinnuvegum hvetjandi, örugg og traust starfsskilyrði og við ætlum að eyða pólitískri óvissu um grunnatvinnuvegina. Þá tekur atvinnulífið við sér eins og jurt sem stóð í skugga en hefur aftur litið ljós eins og Björgvin Halldórsson syngur svo fallega.
Á grundvelli þessara hornsteina hefst nýtt og kraftmikið framfaraskeið í þágu heimila landsins þar sem stöðugleiki og vöxtur verða aðalsmerkin. Þetta er leið Sjálfstæðisflokksins, sagði Bjarni.
En bráðum er biðin á enda Það sem stendur fjölskyldum og fyrirtækjum fyrir þrifum, er ekki skortur á tillögum, heldur aðgerðarleysi þeirra sem ráða för í þinginu.
En bráðum er biðin á enda. Þá loksins gefst tækifæri til að stíga fram og létta undir með heimilunum í landinu.
Við ætlum að ráðast að rót vanda heimilanna með skulda- og skattalækkunum. Við ætlum að lækka tekjuskattinn að nýju og einfalda skattkerfið, hætta með þriggja þrepa kerfi.
Til að létta greiðslubyrðina og auðvelda fjölskyldum að lækka húsnæðislánin munum við veita sérstakan skattaafslátt vegna afborgana af lánum til eigin íbúðakaupa og við munum nýta skattkerfið til að hjálpa fólki að lækka húsnæðislán sín.
Skattaafsláttur er í dag veittur til að leggja fyrir í séreignarsparnað. Ég vil veita þeim sem frekar kjósa að greiða inn á húsnæðislánin sín þennan sama afslátt varanlega. Það mun létta áhyggjum af fjölmörgum um hver mánaðamót, segir í setningarræðu Bjarna.
Fólki verði gert heimilt að skila lyklum Við ætlum að gera fleira í húsnæðismálunum. Við munum endurskipuleggja íbúðalánamarkaðinn og tryggja fólki val um lánakerfi.
Markmiðið er að fólk geti fengið sambærileg lán og hjá nágrannaþjóðunum, sanngjarna vexti til langs tíma, óverðtryggt, segir Bjarni og einnig: Við viljum ekki að fólk sé gert upp vegna skulda sem það hefur stofnað til vegna eigin íbúðarhúsnæðis.
Sjái skuldari sér engan veginn fært að standa undir rekstri húsnæðis síns, jafnvel með ofangreindum úrræðum, á honum að vera heimilt að skila lyklunum og losna undan skuldum sínum, án þess að það leiði til gjaldþrots, Sagði Bjarni.//////////////////Þetta er mjög góð ræða og yfirgripsmikil og farið yfir eiginlega allt,nema andstæðingum okkar fannst hann ekki tala um hrunið,auðvitað ekki þar búið að gera á síðustu tveim landsfundum með honum og okkur flestum,og í fjögur ár hefur þessi vinstri stjórn ekki talað um annað!!það er komin tími á að tala um framtíðina,og vel það!!enda er nóg að gera í því!!en um þessa ræðu sem ég þarf ekki að endurtaka er margt sem verður um rætt þarna á Landsfundinum og ýmislegt sem hann sagði, verður skoðað vel ,og rætt ekki veitir af,að taka betur en þetta um skuldir heimilan og fleira en þetta verður allt rætt!!!!og vonandi gengur vel!!!/Halli gamli
![]() |
Vilja endurskipuleggja íbúðalán |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Staðfestirtir afskipti Jóns Ásgeirs Innlent | mbl.is | 22.2.2013 | 9:16 Ólafur Stephensen, ritstjóri Fréttablaðsins, segist geta staðfest að Jón Ásgeir Jóhannesson hafi verið mjög ósáttur við fréttaflutning af sjálfum sér í Fréttablaðinu og gert tilraunir til að hafa áhrif á hvernig skrifað er um hann.
Ólafur sagði þetta í viðtali á Bylgjunni í morgun í tilefni af skrifum Magnúsar Halldórssonar blaðamanns hjá 365-miðlum á Vísi í gær.
Þarna er Magnús að segja að Jón Ásgeir hafi reynt að hafa ósmekkleg afskipti af störfum blaðamanna hjá 365 miðlum. Þetta er góð grein hjá Magnúsi, sagði Ólafur Stephensen, en tók jafnframt fram að Magnús væri ekki á ritstjórn Fréttablaðsins, sem hann stýrir heldur á ritstjórn Stöðvar tvö, Bylgjunnar og Vísis.
En vandaður blaðamaður eins og hann Magnús er ekki að fara með neitt bull, sagði Ólafur.
Ég get bara sagt það að ég kannast alveg við það að Jón Ásgeir hafi verið mjög ósáttur við fréttaflutning af sjálfum sér í Fréttablaðinu og já vissulega gert tilraunir til að hafa áhrif á hvernig við setjum þær fram, en það er líka jafnrétt hjá Magnúsi í þessari grein, og þá tala ég bara fyrir mína ritstjórn, en ég held að það eigi jafnt við um hina fréttastofuna, að við látum það ekki hafa áhrif á okkur og höfum ekkert leyfi til þess.
Ólafur sagði að blaðamenn fréttastofanna störfuðu eftir siðareglum sem samþykktar væru að stjórn 365-miðla, en það segi að hagsmunir eigenda skuli ekki hafðir til hliðsjónar við vinnslu efnis. Við stöndum mjög fast á því, sagði Ólafur./////////////þetta er ekki nýtt að heyra als ekki hefur alltaf gengið,með blöð því miður,er þetta ekki gert með Morgunblaðið og Davíð og fyrrverandi ritstjóra og flokkinn okkar sem þetta væri flokksblað??einnig önnur blöð sem gáfust upp eins og Tíman Þjóðviljan Alþýðublaðið og fleiri!!!en eigendur blaða ráða og reka fólk,og ekkert nýtt,þeir sem leggja það á sig að eiga fjölmiðla í dag eru ekki öfundsverðir það gengur ekki um of vel og skaffar vinnu og okkur lesefni og fréttir,um heiðarleika er misjafnt um að tala,tölum bara um RÚV þar er ekki alltaf haldið að hlutdrægni sé ekki í lagi als ekki!!og þar eru sögur staðfestar um einræði útvarpstjóra sannar eða lognar??en með þetta Fréttablað og 365 er sama sagan,ég veit ekki annað en þessir fréttahaukar sem þarna baknaga eigendur sína megi bara hætta og stofna heiðarlegan fjölmiðil sjálfir,ekki spurning,af hverju þykkur þetta fólk að lesa þetta blað frítt og menn auglýsa þarna óspart!!!menn þessir flestir ættu að líta sér nær en ekki vera að nota fjölmiðla til að grafa undan þeim!!!en ég þarf ekki að svara fyrir Jón Ásgeir en þetta er ekkert sem ég sé að þurfi að gera dómsólar eiga að dæma ef brotið er á okkur en ekki þessi aðferð!!!Skítkast virðist mjög smitandi að mínu áliti/Halli gamli
![]() |
Staðfestir afskipti Jóns Ásgeirs |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.2.2013 | 14:05
Hafa endurgreitt 9 milljarða//þetta bjargar þvi miður lítið: en er samt viðleittni,ekkert annað!!!!
Hafa endurgreitt 9 milljarða Viðskipti | mbl | 21.2.2013 | 20:20 Stóru bankarnir þrír hafa á síðustu 4 árum endurgreitt viðskiptavinum sínum rúmlega 9 milljarða í formi peningagreiðslna eða lækkunar á höfuðstóli lána.
Í kjölfar tilkynningar Íslandsbanka um 2,5 milljarða endurgreiðslu tók mbl.is saman upplýsingar um endurgreiðslur og afslætti bankanna.
Þetta er fyrir utan höfuðstólslækkanir eða aðrar breytingar sem hafa verið gerðar vegna opinberra aðgerða eða sjálfstæðra ákvarðana hvers banka fyrir sig í þeim efnum. Lækkuðu lán um 4,1 milljarð Landsbankinn hefur greitt hæstu upphæðina, en á hún nemur um 4,5 milljörðum.
Þar af var um 4,1 milljarða endurgreiðsla í formi lækkunar á höfuðstóli lána um sumarið 2011. Þá endurgreiddi bankinn 20% af vöxtum lána, sem einstaklingar greiddu á tímabilinu frá árslokum 2008 til maímánaðar 2011.
Hámarksgreiðsla á hvern og einn viðskiptavin var 1 milljón. Endurgreiðsla stóru bankanna þriggja síðustu árin. Mynd/mbl.is Um 350 milljónir komu til vegna 50% endurgreiðslu á vöxtum sem greiddir voru vegna desember gjalddaga árin 2009 og 2010.
Sú upphæð var millifærð inn á reikning viðskiptavina. Í heild hafa um 54 þúsund viðskiptavinir notið góðs af þessum aðgerðum. Endurgreiðsla og vaxtaafsláttur Íslandsbanki hefur á þessu tímabili staðið fyrir eða tilkynnt um endurgreiðslu á um 2,8 milljörðum.
Í dag gaf bankinn út að um 20 þúsund viðskiptavinir fengju endurgreidda 30% af þeim vöxtum sem þeir greiddu af húsnæðislánum og öllum almennum skuldabréfalánum hjá bankanum á síðasta ári.
Heildarupphæð endurgreiðslunnar er um 2,5 milljarðar króna en að meðaltali mun hver viðskiptavinur fá endurgreiddar um 120.000 krónur.
Endurgreiðslan getur að hámarki numið 500.000 krónum á hvern viðskiptavin. Íslandsbanki hefur einnig staðið fyrir endurgreiðslu til vildarviðskiptavina síðustu 4 ár.
Með þessu móti hefur bankinn borgað út um 330 milljónir í formi punkta, sem viðskiptavinir geta breytt í krónur og tekið út.
Til viðbótar þessu gaf bankinn þeim sem ákváðu að breyta verðtryggðum og gengistryggðum lánum yfir í óverðtryggð lán á breytilegum vöxtum vaxtaafslátt.
Samkvæmt upplýsingum frá Íslandsbanka er heildarkostnaður vegna þess um 2 milljarðar.
Þetta gekk þó ekki yfir þá sem ákváðu að halda áfram óbreyttum lánum. 2,5 milljarðar inn á reikning viðskiptavina Hjá Arion banka var í fyrra veittur svokallaður þakklætisvottur, en bankinn gaf viðskiptavinum þá afslátt af greiðslum ársins á undan.
Nam afslátturinn sem nemur tveimur gjalddögum á íbúðalánum og 30% afslætti af vaxtagreiðslum ársins af yfirdráttarlánum.
Heildarupphæð endurgreiðslunnar var 2,5 milljarður, en um 33 þúsund viðskiptavinir fengu greitt frá bankanum inn á reikninga sína.
Ekki frekari aðgerðir hjá hinum bönkunum Í kjölfar endurgreiðslunnar sem Íslandsbanki kynnti í dag spurðist mbl.is fyrir hjá hinum bönkunum hvort von væri á svipuðum aðgerðum.
Fengust þau svör að um einskiptiaðgerðir hafi verið að ræða og að ekki væri gert ráð fyrir frekari endurgreiðslum eða afsláttur nú.////////////////////Viðleitni skal þetta heita ekki nein greiðasemi að mínu áliti!!!en þessi Ríkisstjórn hefur ekki þorað að taka á málum,seldi bankana á tombóluvirði með öllum lánum fólks og fyrirtækja,nema Landsbanka enn ætlar að selja samt mikið meira í honum,en auðvitað hefi átt að leiðrétta lánin um leið og þetta var selt!!!um 30% höfuðstólin ekki mynna,en blessað fólkið sem tók þau í góðri trú,um litla verðbólgu og greiðslugetu það var gfið skít í það,þetta var velferðastjórnin sem horfir nú daglega á að fólk missir allt sitt í hendur voganasjóði og svo eigin banka!!!allir sjá og ekkert gert nema að henda smá pening í fólk og fyrirtæki sem gerir ekkert nema að lengja í hengingarólinni!!og það sem verra er að það sem maður heyrir að þeir sem sennilega taka við gera lítið meira,jú þeir ætla að lækka skatta og lofa sumum og nota það í lánin,og svo framvegis ,eitt mjög gott að leifa fólki að skila lyklum ef það ræður ekki við og engin eftirköst eða gjaldþrot,þetta er gert í USA og verið mikið notað fólk getur þá byrjað uppá nýtt ekki gjaldþrota!!!En við sem sjáum hvernig þetta fer með stóran hluta fólks stoppum ekki hér við,við viljum að þessu fólki verði bættir hlutur sama og um hamfarir er gert,það er málið!!!sama hvað flokkar komast að,þetta mun brenna á fólki sem ekki á sér neinn málsvara í þessum stóru flokkum,við viljum þarna byltingu ekki spurning,minn flokkur boðar framfarir og atvinnu það er gott,og að allir hafi vinnu,það gott,en einnig leiðréttingu fyrir okkur gamla fólkið og öryrkja það gott,og helst til við meiri fjarfestingar og arð!!en einnig við að rétta við heilsugæslu sem er komin í neðsta þrep!!en þetta með lánin og hengjuna miklu 2000 milljarða á að leysa um leið með lögum okkar en ekki alþjóðlegum,það erum við sem verðum að verja okkur ,fyrir gjaldþroti landsins!!!!,með von um að þessu öllu verði bjargað!!/Halli gamli
![]() |
Hafa endurgreitt 9 milljarða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
-
skordalsbrynja
-
bjarnihardar
-
stebbifr
-
bassinn
-
trj
-
einarvill
-
kristbjorg
-
bofs
-
don
-
ingagm
-
einarbb
-
villibj
-
martagudjonsdottir
-
tilveran-i-esb
-
asthildurcesil
-
athena
-
ea
-
altice
-
karisol
-
kolbrunb
-
ksh
-
mariaannakristjansdottir
-
mosi
-
solir
-
minos
-
erna-h
-
sgisla
-
korntop
-
ibb
-
bjarnimax
-
seinars
-
skodunmin
-
hjolagarpur
-
summi
-
gelin
-
otti
-
ansigu
-
ingabesta
-
skinogskurir
-
tibsen
-
reynir
-
isleifur
-
helgigunnars
-
jakobk
-
morgunn
-
dramb
-
gudni-is
-
siggisig
-
jonsnae
-
gattin
-
jon-o-vilhjalmsson
-
1kaldi
-
magnusthor
-
lucas
-
gislisig
-
gummiarnar
-
gammon
-
himmalingur
-
gingvarsson
-
snjokall
-
vefritid
-
gudrunmagnea
-
sigurjonn
-
saethorhelgi
-
liljabolla
-
malacai
-
topplistinn
-
hordurhalldorsson
-
whaling
-
stjornlagathing
-
vestskafttenor
-
ester13
-
haukurn
-
partners
-
drum
-
kokkurinn
-
gumson
-
valdimarjohannesson
-
kristjan9
-
mathieu
-
hordurj
-
samstada-thjodar
-
snorribetel
-
godurdrengur
-
kij
-
krist
-
bjartsynisflokkurinn
-
jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.7.): 1
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 1047931
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 12
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar