Þóra mælist með mest fylgi//Þetta á eftir að breytast ekki spurning!!!

Þóra mælist með mest fylgi Innlent | mbl.is | 26.4.2012 | 16:38 Samkvæmt nýrri könnun Félagsvísindastofnunar HÍ á fylgi forsetaframbjóðendanna fengi Þóra Arnórsdóttir mest fylgi, 49%. 
Þóra Arnórsdóttir býður sig fram til embættis forseta Íslands
Ólafur Ragnar Grímsson mælist með 34,8% og Ari Trausti Guðmundsson 11,5%. Aðrir frambjóðendur mælast með minna fylgi. Könnunin var send á netpanel Félagsvísindastofnunar, sem byggir á tilviljunarúrtökum úr Þjóðskrá. Gögnin voru að auki vigtuð með tilliti til aldurs, kyns og búsetu svo þau endurspegli þjóðina, samkvæmt fréttatilkynningu frá Félagsvísindastofnun. Sami hópur var spurður um afstöðu sína til frambjóðenda þann 17. apríl síðastliðinn en þá hafði Ari Trausti Guðmundsson ekki gefið kost á sér. Hann virðist sækja fylgi sitt einkum til óákveðinna en 46% þeirra sem nú segjast ætla að kjósa hann ætluðu áður að skila auðu, voru óákveðnir eða vildu ekki svara. 0,8% sögðust ætla að kjósa Ástþór Magnússon, 0,3% ætla að kjósa Hannes Bjarnason, 3% hyggjast kjósa Herdísi Þorgeirsdóttur og 0,6% Jón Lárusson. Þriðjungur stuðningsmanna Ara Trausta ætluðu að kjósa Þóru Arnórsdóttur þegar spurt var 17. apríl og 11% ætluðu að kjósa Ólaf Ragnar Grímsson. Svarendur voru spurðir að því hvað vegi þyngst við val þeirra. Velja mátti að hámarki þrjú atriði af 15. Almennt þótti svarendum þekking og reynsla frambjóðandans mikilvægust og því næst heiðarleiki frambjóðandans. Þannig segist 61% þeirra sem styðja Ólaf Ragnar Grímsson að þekking hans og reynsla sé einn af þremur þáttum sem vegi þyngst í ákvörðun þeirra. Það sama gildir um 24% stuðningsfólks Þóru Arnórsdóttur og 37% þeirra sem styðja Ara Trausta Guðmundsson. Tæpur helmingur stuðningsfólks Ara Trausta segir heiðarleika hans vega einna þyngst í ákvörðuninni en það á við um 45% stuðningsfólks Þóru en 18% þeirra sem styðja Ólaf Ragnar. Almenn framkoma Þóru Arnórsdóttur þótti vega þungt í ákvörðun 51% stuðningsmanna hennar. Á hinn bóginn nefndu einungis 16% stuðningsmanna Ólafs Ragnars að almenn framkoma vegi einna þyngst í ákvörðuninni um hvaða frambjóðanda skuli greiða atkvæði. Sá eiginleiki í fari Ara Trausta Guðmundssonar sem flest stuðningsfólk hans er sammála um að vegi þungt við ákvörðunina um að greiða honum atkvæði er heiðarleiki hans. Þekking og reynsla Ólafs Ragnars Grímssonar er sá eiginleiki sem flest stuðningsfólk hans velur en almenn framkoma Þóru Arnórsdóttur er sá eiginleiki sem flest stuðningsfólk hennar segir hafa vegið þungt við ákvarðanatökuna. Könnunin var send á 1961 þátttakendur og alls svöruðu 1379. Svarhlutfallið er því 70%.//////Þetta getur og mun auðvitað breytast,Ólafur Ragnar mun vina þetta að mínu álti !!!Ekki það að ég sé á móti Þóru sem er frábær sjánvapskona og vel mentuð og hugguleg mjög!! en það er svo að reynslan og ESB sker úr um þetta hjá mér og fleirum,og Samfylking er að styðja Þóru vegna þessa,og þar hefur ÓLafur vinninginn lætur ekki stjórna sér,en vinnur fyrir fólkið,og mun gera Það,hvað ef þau í Samfylkingu fengju nú flitimeðferð í ESB og Alþingi reða bara og engin kosning,mundi ekki Þóra skrifa undir þar!!! en ekki Ólafur Ragnar als ekki!!!!!/Halli gamli

mbl.is Þóra mælist með mest fylgi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vilja refsiaðgerðir gegn Íslandi/Nú þíðir ekkert annað en harkan sex,hætta viðræðum við ESB!!!

Vilja refsiaðgerðir gegn Íslandi Innlent | mbl.is | 26.4.2012 | 18:09 „Þetta er mikilvægt skref til þess að tryggja það að gripið verði áhrifaríkra refsiaðgerða gegn Íslandi og Færeyjum. Koma verður skikki á bæði löndin fyrir ósjálfbærar veiðar þeirra og þeim gert að skilja að slík framganga verði ekki liðin af alþjóða sjávarútvegssamfélaginu.“ egir Bertie Armstrong, framkvæmdastjóri Samtaka skoskra útgerðarmanna, í samtali við fréttavefinn Fishupdate.com um makríldeiluna. Fram kemur í fréttinni að 
Mynd 544175
foristumenn útgerðarmanna í Skotlandi og á Írlandi hafi fagnað samþykkt sjávarútvegsnefndar Evrópuþingsins fyrr í vikunni á frumvarpi að reglugerð þar sem gert er ráð fyrir að Evrópusambandið fái heimildir til þess að beita ríki utan sambandsins refsiaðgerðum sem stundi ósjálfbærar fiskveiðar. Haft er einnig eftir Ian Gatt, framkvæmdastjóra Samtaka skoskra uppsjávarútgerða, að hann fagni samþykkt sjávarútvegsnefndarinnar og leggur ennfremur áherslu á að ríkisstjórnir allra ríkja ESB verði að veita því fullan stuðning sinn að hægt verði að grípa til slíkra refsiaðgerða.//////Engin vettlingatök lengur við þessi samtök ESB als ekki þetta veitt i okkar lögsögu og við stöndum á þvi ekki spurning,´sinum þeim í tvo heimana og hættum viðræðum á meðan allavega!!!!!Halli gamli

mbl.is Vilja refsiaðgerðir gegn Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hægri grænir kynntu stefnumál sín/Allt er betra en vinstrið!!!!!!

Hægri grænir kynntu stefnumál sín Innlent | mbl | 26.4.2012 | 18:50 Forsvarsmenn Hægri grænna - flokks fólksins kynntu helstu stefnumál flokksins á fjölmennum fundi á Múlakaffi fyrr í dag. Fundurinn 
Frá fundi Hægri grænna í dag.
 hófst klukkan 14:00 í dag og stóðu ræðuhöld forsvarsmanna flokksins yfir í rétt rúman hálftíma. Ræðumenn fundarins voru þau Guðmundur Franklín Jónsson, formaður Hægri grænna, Sigríður Pétursdóttir, kosningastjóri flokksins, Pétur Fjeldsted Einarsson og Guðrún Bryndís Karlsdóttir. Í ræðu sinni fór Guðmundur Franklín yfir helstu stefnumál flokksins. „Við erum hægriflokkur, þá leggjum við áherslu á lága skatta og sem minnst ríkisafskipti, þetta er svona gegnumsneitt í gegnum stefnuna,“sagði Guðmundur Franklín á fundinum í dag. Í ræðu Guðmundar Franklín kom einnig fram að Hægri grænir legðu áherslu á sparnað og að forsvarsmenn flokksins hefðu fundið sparnaðarholur í 200 ríkisfyrirtækjum sem ekki hefði núþegar verið sparað í. Guðmundur Franklín Jónsson, formaður Hægri grænna - flokks fólksins. Mbl.is/Júlíus Sigurjónsson Guðmundur Franklín sagði fundinum að skuldaleiðrétting á verðtryggðum lánum heimilanna væri að hans mati mikilvægasta baráttumál flokksins en hann telur slík lán vera ólögleg samkvæmt lögum og reglum sem sett voru í kjölfar ESB-tilskipunar frá 1. nóvember 2007. „Það eru um 1.100 skráðir í flokkinn,“ sagði Guðmundur Franklín þegar blaðamaður Morgunblaðsins spurði hann, að fundi loknum, hversu margir væru skráðir í Hægri græna. Hann benti þó á að nokkur þúsund manns væru skráðir á hinar og á fleir væru skraðir á fesbok og víðar!!!
//////það er kannski að bara í bakkafullan lækin að fá fleiri framboð,en þetta er þó til hægri það gott,og ekki slæmt að lesa stefnuskrána als ekki ,en það er svo ekki mun ég kjósa þetta að sinni,ég kís minn flokk XD ef að líkum lætur,en ég veit að óánægðir með okkur sumir muni kjósa þarna,og það er allt betra en vinstrið!!!/Halli gamli

mbl.is Hægri grænir kynntu stefnumál sín
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gæslan vill breytingar á frumvarpi/Þessi ríkisstjórn er einráð,hvað kemur henni Landhelgisgæslan við???

Landhegisgæslan vill breytingar á frumvarpi Innlent | Morgunblaðið | 26.4.2012 | 7:39 Landhelgisgæslan hefur sent atvinnuveganefnd Alþingis umsögn um frumvarp til laga um stjórn fiskveiðaMeðal annars er gerð athugasemd við að hlutur Gæslunnar sé fyrir borð borinn í annarri grein frumvarpsins, sem fjallar um stjórnvöld. Í athugasemdum segir: „Í 2. gr. frumvarpsins er greint frá því hvaða stjórnvöld hafa hlutverk samkvæmt lögunum. Algerlega er sleppt að nefna Landhelgisgæslu Íslands, sem þó hefur ærinn starfa við fiskveiðieftirlit, m.a. í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar (fjareftirlGæslan vill breytingar á kvótafrumvarpinu. it), auk eftirlits landhelgisgæsluflugvélar og þyrlna, varðskipa og annarra eftirlitsskipa.“//////allt á sömu bókin lært þarna ,það skal bara vaðið yfir allt og alla,og ekkert einu sinni nefna Landhelgisgæslu i frumvarpinu um eyðileggingu fiskveiða///Halli gamli
mbl.is Gæslan vill breytingar á frumvarpi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Klækjabrögð eða morgunfýla?//Þessi ríkisstjórn vill ekkert nema ófrið!!!!

Klækjabrögð eða morgunfýla? Innlent | mbl.is | 26.4.2012 | 11:11 Tekist var á um afgreiðslu utanríkismálanefndar á samþykkt rammasamnings milli ríkisstjórnarinnar og framkvæmdastjórnar ESB um IPA-styrki við upphaf þingfundar í dag. Stjórnarandstaðan sagði að um klækjabrögð væri að ræða en fulltrúi mFrá Alþingi.
eirihlutans í nefndinni bað sömu þingmenn að láta af morgunfýlu. Málið var afgreitt út úr utanríkismálanefnd í morgun og tók Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins og fulltrúi í nefndinni, málið fyrstur upp við upphaf þingfundar. Hann sagði að hvað eftir annað væri grundvallaratriðum í umsóknarferlinu að Evrópusambandinu haldið frá eða út úr þeim snúið. Nú hafi málið þróast á enn verri veg þar sem stjórnarmeirihlutinn beiti brögðum til að þoka málum áfram. Evrópusambandið AP Sigmundur sagði að IPA-styrkir hefðu ekki verið ræddir sem skyldi og sagði stjórnarliða þagga niður umræðuna um umsóknina að ESB. Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokks og fulltrúi í utanríkismálanefnd, sagði það hafa vakið furðu sína þegar hún mætti á fundinn í morgun, að vísu þrettán mínútum of seint. „Þá var verið að greiða atkvæði um hvort taka ætti málið út.“ Hún sagði nefndina ekki hafa verið fullskipaða en alsiða væri að bíða eftir nefndarmönnum sem ekki hafa boðað forföll. Þá hafi á sama tíma meirihlutinn kallað inn tvo varamenn. Ragnheiður sagðist ekki skilja hvers vegnar svo lá á að taka málið út. Hún svaraði því sjálf, að málið hafi legið inni í nefndinni lengi en formaður hennar vitað að ekki væri meirihluti fyrir málinu þegar utanríkismálanefnd er fullskipuð. Því hafi verið gripið til klækjabragða, varamenn kallaðir til og málið þannig afgreitt. Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingarinnar og fulltrúi í nefndinni, sagði fagnaðarefni að málið hafi verið afgreitt út úr nefndinni, enda greiði það fyrir atvinnuskapandi þekkingarverkefnum og gjaldeyrisöflun. Hann bað þingmenn að vera ekki svona morgunfúla og sagði að svo virðist sem ekki megi gera neinar ráðstafanir ef það tengist á einhvern hátt Evrópu. „Vilja þeir kannski hætta viðskiptum við Evrópu, loka landamærum eða segja upp samningum við ríki ESB.“ Helgi sagði að málið hafi verið afgreitt með fullkomlega eðlilegum hætti. Málið hafi verið á dagskrá kl. 8.30 ekki boðað að gestir myndu mæta. Því hafi nefndarmönnum mátt vera ljóst að til stæði að afgreiða málið úr nefndinni á þessum tíma. Ekki hafi verið eftir neinu að bíða og öllum nefndarmönnum mátti vera ljóst að tímanlega ætti að mæta til að taka þátt í atkvæðagreiðslunni. Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, kom einnig í ræðustól og vildi setja málið í samhengi. Hann nefndi hversu naumt það er hjá meirihlutanum að koma málum sem tengjast ESB í gegn, og hefði verið örlítil breyting á nefndinni í morgun hefði það ekki tekist. Hann velti því fyrir sér hvernig málin standa þá þegar IPA-styrkirnir koma aftur inn í þingið. „Það kann að vera, að nefndarmenn kunna að reka sig á það, að sigurinn er ekki unninn, þó að þeir hafi unnið þennan áfanga í morgun.“//////Er það fullkomið réttlæti að vinna svona,er það Alþingi til sóma,nei það er það ekki!!!Þessi ríkisstjórn gerir bara í þvi að setja allt i uppnám,enda að verja vondan vana sinn að þeir einir ráði,til hvers er þá minnihlutinn??? ég við bara segja það að ef ég væri þarna i minnihlutanum mundi ég labba út með öllum sem hann telja og ekki koma á fundi fyrr en málin sem þjoðin bíður eftir eru komin á dagskrá ,þarna kemur fram að Þingforseti er hlutdrægur mjög og tekur ekkert tilit til minnihlutans,og þar með eru þingsköp brotin ,svo þetta er það eina sem gyldir gerið þetta bara/Halli gamli

mbl.is Klækjabrögð eða morgunfýla?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hrun ESB orðið að raunhæfum möguleika///Feluleiknum hætt!!!!!!!!

Hrun ESB orðið að raunhæfum möguleika
Erlent | mbl.is | 25.4.2012 | 18:19

Martin Schulz, forseti Evrópuþingsins. „Í fyrsta skipti í sögu Evrópusambandsins er hrun sambandsins raunhæfur möguleiki,“ sagði forseti Evrópuþingsins, Martin Schulz, á fundi í Brussel í dag með fulltrúum í framkvæmdastjórn ESB samkvæmt fréttavefnum Euobserver.com.
Schulz sagði að ástæðan fyrir því að svona væri komið fyrir ESB í dag væri fyrst og fremst sú að forystumenn ríkja þess heimtuðu að fá að taka sífellt fleiri ákvarðanir sjálfir þvert á þau vinnubrögð sem gilt hafi á vettvangi sambandsins///////svona er þetta í reynd sannleikurin kemur altaf í ljós ekki spurning///Halli gamli
mbl.is Hrun ESB orðið að raunhæfum möguleika
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gubbupestin versnaði við ræðuhöldin/ segir síðasti Kratinn

Gubbupestin versnaði við ræðuhöldin Innlent | mbl.is | 25.4.2012 | 9:36 „Ég hlustaði á umræður um Vaðlaheiðargöng í gærkvöldi og ég verð að segja að gubbupestin versnaði þegar ég hlustaði á sumar ræður sem þar voru fluttar.“ Þetta sagði Kristján Möller, formaður atvinnuveganefndar Alþingis, á fundi hjá Samtökum iðnaðarins í morgun. Kristján sagði að hann hefði verið að standa upp úr gubbupest sem hefði hrjáð hann í vikunni. Í gærkvöldi hefði hann setið heima og fylgst með umræðum á Alþingi um Vaðlaheiðargöng, en fyrstu umræðu um málið lauk í gærkvöldi. Kristján hefur beitt sér fyrir því að ráðist verði í VKristján Möller alþingismaður.
aðlaheiðargöng. Hann fór hörðum orðum um málflutning andstæðinga ganganna. „Eftir að hafa hlustað á „ótrúlega málafylgju andstæðinga ganganna“ sagðist hann ekki viss um að ráðist verði í framkvæmdir við göngin. Kristján ræddi um nokkur verkefni sem rætt hefði verið um að ráðast í með þátttöku lífeyrissjóðanna. Hann sagði að það hefði verið rétt ákvörðun hjá stjórnvöldum að hafna tilboði lífeyrissjóðanna að fjármagna framkvæmdir á Suðvesturlandi. Sjóðirnir hefðu krafist 3,9% ávöxtunar og álags sem hefði skilað þeim 4,25% ávöxtun. Stjórnvöld hefðu viljað miða við skuldabréfaflokk á markaði sem í dag skilaði 2,68% ávöxtun.//////Það er engin á móti Vaðlaheiagöngum sem slíkum,en það er beðið annarra ganga sem eru i forgangi!!!Þetta ,með að lengja bara gjaldi ef framúr er farið,er ekki gott,það er nefnilega ekki tekið i dæmið að með hækandi eldsneyti er það vist að draga mun mikið úr umferð ,ekki spurning og það tekur langan tíma að breyta bifreyðum á annað eldneyti,Kristján Mölller meinar þetta vel en samt er ekki hægt að treysta þessu og bíða bara með þetta,og skoða betur,/Halli gamli

mbl.is Gubbupestin versnaði við ræðuhöldin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Birgitta styður vantrauststillögu/þetta er gott ef við er staðið,Vantraust strax!!!!

Birgitta styður vantrauststillögu Innlent | mbl.is | 25.4.2012 | 14:15 Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, styður vantrauststillögu á hendur ríkisstjórninni ef ekki verður komið til móts við kröfur flokksins í nokkrum málaflokkum, þar með talið í skuldamálum heimila. Þór Saari og Margrét Tryggvadóttir, þingmenn Hreyfingarinnar, boða í Morgunblaðinu í dag að þau muni styðja vanBirgitta Jónsdóttir trauststillögu á hendur ríkisstjórninni ef ekki verður komið til móts við kröfur flokksins í nokkrum málaflokkum, þar með talið í skuldamálum heimila.////////Grípum þetta á lofti strax og gerum vantraust!!Þvi ríkisstjorn er búinn að segjast ekki geta meira í skuldamálum heimilanna!!!!!/Halli gamli
mbl.is Birgitta styður vantrauststillögu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjarðarkaup ódýrari en Krónan///Mín skoðu er að verðlag sé of hátt ,samkeppnin ekki nóg!!!

Fjarðarkaup ódýrari en Krónan Innlent | mbl.is | 25.4.2012 | 13:47 Bónus var með lægsta verðið á matarkörfunni þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð í lágvöruverðsverslunum og stórmörkuðum víðsvegar um landið síðastliðinn mánudag. Fjarðarkaup var með næst ódýrustu matarkörfuna og Krónan 
Ódýrast er að kaupa í matinn í Bónus, samkvæmt verðlagskönnun ASÍ
er í þriðja sæti. Bónus var með lægsta verðið á matarkörfunni þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð í lágvöruverðsverslunum og stórmörkuðum víðsvegar um landið síðastliðinn mánudag. Matarkarfan var ódýrust í Bónus á 20.404 kr. en dýrust í Nóatúni á 24.680 kr. sem er 4.276 kr. verðmunur eða 21%. Matarkarfan í Samkaupum-Úrvali var næst dýrust eða á 24.658 kr. eða 22 kr. ódýrari en karfan í Nóatúni Nóatún og Samkaup-Úrval 21% dýrari en Bónus Fjarðarkaup var með næst ódýrustu matarkörfuna en hún kostaði 22.058 kr. sem er 8% dýrari en hjá Bónus. Lítill verðmunur er á milli Fjarðarkaupa, Krónunnar og Nettós eða aðeins 3%. Matarkarfan hjá Krónunni er 221 kr. dýrari en hjá Fjarðarkaupum og hjá Nettó er karfan 405 kr. dýrari en hjá Krónunni. Eins og fyrr segir var matarkarfan dýrust í Nóatúni á 24.680 kr. og næst dýrust í Samkaupum-Úrvali á 24.658 kr. en báðar eru þær 21% dýrari en karfan í Bónus. Matarkarfan kostaði 24.144 kr. í Hagkaupum sem er 18% meira en í Bónus, segir í tilkynningu frá ASÍ Verðmunurinn mestur á bönunum Af einstaka vörum í körfunni var mestur verðmunur á bönunum sem voru dýrastir á 379 kr./kg. í Hagkaup en ódýrastir á 129 kr./kg. hjá Fjarðarkaupum, verðmunurinn var 250 kr. eða 194%. Mikill verðmunur var einnig á ódýrustu fáanlegu pastaskrúfunum sem voru dýrastar á 518 kr./kg. í Nóatúni en ódýrastar á 195 kr./kg. í Bónus, sem gerir 166% verðmun. Enginn verðmunur var á nýmjólk í könnuninni sem kostaði 115 kr./l. í öllum verslunum. Af öðrum vörum í könnuninni má nefna sem dæmi heilsutvennu frá Lýsi 32 daga skammt sem var dýrastur á 1.098 kr. í Samkaupum-Úrvali en ódýrastur á 793 kr. í Bónus verðmunurinn var 305 kr. eða 38%. Gerber sveskjumauk nr.1 var dýrast á 169 kr. í Nóatúni en ódýrast á 139 kr. í Bónus, verðmunurinn var 30 kr. eða 22%. Burger spelt hrökkbrauð var ódýrast á 179 kr. í Bónus og dýrast á 209 kr. í Hagkaup verðmunurinn var 30 kr. eða 17%.//////Nú bregður svo við að hætt er að ráðst á Bónus þegar þeir feðgar mystu þetta!!! en svona almennt held ég að samkeppni sé ekki nóg ,Vöruverð almennt og hátt,sní ekki til baka með það,t.d Kaffi sem lækaði á heimsmarkaði lækar ekki ú verslunum og fleira mætti telja,en að Víður og Kostur skuli ekki vilja taka þátt er ekki gott,það er eitthvað sem maður ekki skilur!!Ég hefi oft verslað í Víðir og það kemur vel út mjög,en heilt yfir held ég að vöruverð sé of hátt ekki spurning/Halli gamli

mbl.is Fjarðarkaup ódýrari en Krónan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kringlan og Smáralind halda sínu striki/Þetta er skömm og ekkert annað!!!!

Stefán Einar Stefánsson, formaður VR, segir augljóst að vekja þurfi athygli á að verið sé að hafa umsamda frídaga af vinnandi fólki þegar opið sé í verslunum á dögum eins og 1. maí. Almennt komi þetta verst niður á fólki sem starfi við verslun og þjónustu jafnvel á sjálfum frídegi verslunarmanna. Stefán Einar skrifaði grein í Morgunblaðið í dag þar sem vakin er athygli á því að verslunarfólk í Kringunni og Smáralind þurfi að vinna á 1. maí baráttudegi verkalýðsins sem er á næstkomandi þriðjudag en hann segist hafa fengið mikil viðbrögð við greininni.

Forsvarsmenn verslunarmiðstöðvanna gera ekki ráð fyrir því að bregðast sérstaklega við áskoruninni enda sé verslun mikil á slíkum dögum. Í Kringlunni ráða verslunareigendur því hvort opið sé eða lokað en í Smáralind er gert ráð fyrir því að hafa allar verslanir opnar. Innlent | mbl | 25.4.2012 | 12:30 Kringlan og Smáralind munu ekki breyta opnunartímum sínum vegna óska formanns VR sem hann setti fram í opnu bréfi í Morgunblaðinu í dag. Verslunarmiðstöðvarnar hafa verið opnar á þessum degi undanfarin 8 ár hið minnsta og eru jafnan mjög vel sóttar af viðskiptavinum 1. maí. „Kringlan hefur ákveðið að hún verði opin fyrir viðskiptavinum þennan dag, en kaupmönnum er ekki skylt að hafa opið, þeim er það í sjálfsvald sett," segir Sigurjón Örn Þórsson, framkvæmdastjóri Kringlunnar. Eigendur Kringlunnar telja sig fara ásættanlegan milliveg með því að ákveða að hafa húsið opið, en það sé hverri verslun í sjálfsvald sett hvort lokað verði þennan dag. Aðspurður segist hann allt eins eiga von á því að sumar verslanir verði lokaðar, en fjölmargar muni jafnframt hafa opið. En er ástæða til þess að hafa opið 1. maí? Fólk nýtir frídaga til að versla „Þetta er frídagur og fólk nýtir oft sitt frí til þess að gera eitthvað sem það hefur ekki tíma til að gera á öðrum dögum. Þannig að svarið er já, ég geri ráð fyrir að hér verð talsvert af fólki að versla," segir Sigurjón. Svipaða sögu segir Sturla Gunnar Eðvarðsson, framkvæmdastjóri Smáralindar. „Viðtökur viðskiptavina eru mjög góðar á þessum degi og gestafjöldi mun meiri en aðra daga,“ segir Sturla. Hann bætir því við að sér finnist sérkennilegt af formanni VR að beina spjótum sínum að Kringlunni og Smáralind, nær væri að tala til allra verslunareigenda í landinu. „Síðan er Smáralind ekki verslun í þeim skilningi. Við erum verslunarmiðstöð sem leigjum út rými til kaupmanna,“ segir Sturla. Í Smáralind er það þó ekki undir hverri og einni verslun komið hvort opið verður, opið verður í öllu húsinu. Aðspurðir hvort kvartanir hafi borist vegna opnunar 1. maí segist Sturla ekki vita til þess að verslunareigendur né starfsfólk hafi kvartað. „Ég hef ekki heyrt það.“ Sigurjón segir hinsvegar að það opnunartímar séu oft umdeildir. „Við náttúrulKringlanega verðum vör við skiptar skoðanir á opnunartíma Kringlunnar almennt og þessi dagur er ekki undanskilinn því. Þetta er stórt hús og menn hafa misjafnar skoðanir bæði á lengd opnunartíma og hvaða daga er opið. Ég get ekki neitað því að starfsfólk hefur gert athugasemdir við þetta." Færri afgreiðslustundir en á Norðurlöndum Stefán Einar Stefánsson formaður VR lýsir því í bréfinu sem birtist í dag að dagarnir séu langir hjá verslunarfólki í Kringlunni og Smáralind og frídagar eins og almennir vinnudagar. Sigurjón segir að afgreiðslutíminn sé vissulega langur, en bendir á að hann sé þó styttri en í verslunarmiðstöðvum í öðrum höfuðborgum á Norðurlöndum. Kringlan sé opin í 55,5 stundir á viku, en stærsta verslunarmiðstöð Ósló í samanburði opin í 72 stundir./////Ég persónulega er á móti þessu að hafa búiðr opnar þennan dag!!! og það erum við flest sem erum bara verkalíður!! en það ímir en snoppið víða !!!og fólk er yfir það hafið að gera þennan dag sem hann á að vera,auðvitað er frídagur verslunarmann 6 Ágúst en þá er einnig opið,ég sé ekki annað en leynt og ljóst að það sé ennþá´verið að draga úr baráttu verkalyðsins þó svo krappan hafi kennt okkur annað,þetta er þjóðarskömm og ekkert annað!!!að ber okkur saman við hin Norðurlöndim þar sem laun eru helmingi hærri en hérna er ekki saman að jafna,nei kaupmenn mega passa sig sem eru með lægst launaðasta fókið almennt//þeir ættu bara að endurskoða sinn hlut/Halli gamli


mbl.is Kringlan og Smáralind halda sínu striki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2012
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.7.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 1047931

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband